Ráðningar
Við höfum áralanga reynslu af ráðningum og ráðgjöf á sviði starfsmannamála. Vitum að ráðningar eru meðal mikilvægustu verkefna stjórnenda hverju sinni og að hæft starfsfólk er lykilþáttur í árangursríkri þróun fyrirtækja og stofnana.
Starfsleit er að sama skapi mikilvæg fyrir þá sem eru að hefja starfsferilinn, taka
næsta skref eða leita nýrra tækifæra.
Gott er að hafa í huga við gerð umsóknar:
- Ferilskrá (CV) – Hafðu ferilskránna uppfærða, skýra og hnitmiðaða með helstu upplýsingum um starfsreynslu, menntun og færni
- Kynningarbréf – Helstu persónuupplýsingar, styrkleikar og ástæða umsóknar. Helst ekki lengra en ein blaðsíða.
- Uppsetning – Nýttu leiðbeiningar á netinu, gervigreind og önnur verkfæri
- Prófskírteini og vottanir – Láttu viðeigandi gögn fylgja umsókn
- Umsagnaraðilar – Fáðu samþykki áður en þú vísar á meðmælendur
Við veitum faglega þjónustu og gætum fyllsta trúnaðar.
