Þekking í þína þágu

Við bjóðum fjölbreytta ráðgjöf og þjónustu

Hvort sem um er að ræða lítinn sprota, skráð félag eða opinbera stofnun byggjum við ráðgjöf okkar og þjónustu á áralangri reynslu og þekkingu sem nýtt er í þína þágu.

  • Útvistun fjármálaþjónustu

    Við gerum samstarfsaðilum okkar kleift að útvista rekstri fjármálasviðs að hluta eða öllu leyti til skemmri eða lengri tíma. Heyrðu í okkur og sjáum hvað við getum gert saman.

  • Rekstrarráðgjöf

    Við vitum að rekstur getur verið flókinn og það er í mörg horn að líta, því aðstoðum við gjarnan með ýmis atriði sem snúa að  fjármálum og rekstri. Veitum aðstoð við úttektir, áætlanagerð, verðmat og greiningar. Þá höfum við veitt ráðgjöf við fjármögnun með góðum árangri.

  • Kaup og sala

    Við höfum aðstoðað fjölbreyttan hóp í ferlinu við kaup eða sölu félaga og rekstrareininga. Veitum fjárfestum og seljendum ráðgjöf og leiðum aðila saman við kaup og sölu.

  • IT ráðgjöf og þjónusta

    Við höfum þekkingu og reynslu til að aðstoða við val og innleiðingu á viðskiptahugbúnaði (ERP), viðskiptagreindarlausnum (BI) og öðrum hugbúnaði til að hámarka skilvirkni rekstrar. Aðstoð fagfólks við verkefnastjórnun tryggir örugga innleiðingu.

Við byggjum á traustum grunni

Capacent byggir ráðgjöf og þjónustu á reynslu sem við höfum öðlast með störfum fyrir ýmis félög og stofnanir. Við leggjum áherslu á að skila af okkur framúrskarandi vinnu og byggjum á þekkingu sem nýtt er í þína þágu.


Við aðstoðum gjarnan við rekstur og fjármál hvort sem verkefnin eru stór eða smá. Við veitum fjölbreytta ráðgjöf og þjónustu tengt stjórnun, stefnumótun, fjármálum, greiningu og áætlanagerð.

Markmið okkar er að leggja fram vel skilgreindar aðgerðir sem leiða til hagræðingar og sjálfbærni. Í stuttu máli þá líður okkur best þegar við tökumst á við fjölbreyttar og spennandi áskoranir í nánu samstarfi við frábæra viðskiptavini.


Frumkvæði – Samvinna – Áreiðanleiki

Við leggjum allt í verkefnin okkar

Í þeim verkum sem við tökum okkur fyrir hendur gerum við ekki bara okkar besta til að mæta væntingum – við gerum gjarnan betur. Markmið okkar er ávallt að skila framúrskarandi árangri.

Umsagnir viðskiptavina


„Við höfum fengið Capacent með okkur í mikilvæg verkefni, þar hafa menn verið á boltanum.“

ÖRN TRYGGVI JOHNSEN

ÞG Verk

„Samstarf við ráðgjafa Capacent hefur sannarlega veitt okkur skýrari sýn á reksturinn.“

GUÐBJÖRG SÆUNN FRIÐRIKSDÓTTIR

Einingaverksmiðjan

„Netorka hefur nýtt þjónustu Capacent í lykilverkefnum – ráðgjöf sem nýtist okkur vel.“

TORFI HELGI LEIFSSON

Netorka

„Við höfum notið ráðgjafar Capacent í verkefnum sem án efa hafa aukið verðmæti félagsins.“

ÞÓRSTEINN ÁGÚSTSSON

Sólar

Ánægður viðskiptavinur er okkur kappsmál

Hafðu samband

Viltu vita meira? Skjóttu á okkur línu og við svörum um hæl.

Contact Us

Share by: