Vinnustaðurinn

Hjá Capacent á Íslandi starfar samhentur og öflugur hópur um 100 starfsmanna á sviði rannsókna, ráðgjafar og ráðninga.

Kjarninn í starfsemi okkar er að umbreyta þekkingu í verðmæti. Þannig hjálpum við viðskiptavinum okkar að ná betri árangri. Starfsárangur okkar starfsmanna helst því í hendur við ávinning og árangur viðskiptavina okkar.

Starfsfólk Capacent hefur fjölbreyttan bakgrunn, bæði með tilliti til menntunar og starfsreynslu. Flestir þeirra sem lokið hafa háskólaprófi eru með gráðu í viðskiptafræði, næstflestir í sálfræði og því næst félagsfræði.

Starfsandinn hjá Capacent einkennist af metnaði, frumkvæði, virðingu fyrir skoðunum annarra og trausti til vinnufélaga. Náið er fylgst með starfsánægju og starfsanda með vinnustaðagreiningum sem gerðar eru einu sinni til tvisvar á ári.

Hjá Capacent notum við sjálf þær stjórnunaraðferðir, rannsóknaraðferðir og ráðningaraðferðir sem við ráðleggjum okkar viðskiptavinum að nota.
Print Bookmark and Share