Góðgerðarstyrkir Capacent
Capacent veitir reglulega styrki til góðgerðarmála. Stefnan er að veita aðeins einum til tveimur aðilum styrk hverju sinni þannig að hann skipti verulegu máli fyrir þá aðila sem hann hljóta. Úthlutun fer fram með þeim hætti að gerð er könnun í anda Gallup meðal starfsmanna Capacent og styrkinn fær það félag sem flest atkvæði hlýtur.
Styrkur viðhorfahóps Capacent Gallup
Fyrir hverja könnun sem þátttakendur í Viðhorfahópi Gallup svara rennur ákveðin upphæð til góðgerðarmála.