Samstarfsaðilar

Capacent Rannsóknir
Capacent Rannsóknir hafa verið aðilar að Gallup International frá árinu 1992 og eru jafnframt í samstarfi við rannsóknarfyrirtækin ACNielsen og TNS Gallup í Noregi. Gallup International samtökin, sem stofnuð voru árið 1947, eru með elstu og virtustu samtökum rannsóknarfyrirtækja í heiminum en einungis eitt rannsóknarfyrirtæki frá hverju landi fær aðild að samtökunum. Í gegnum alþjóðlegt samstarf hefur Capacent aðgang að verkfærum, aðferðafræði og öðrum þáttum sem lúta að nýjungum í rannsóknum, svo sem samanburði við alþjóðleg viðmið.

Capacent Rannsóknir hafa um árabil verið samstarfsaðili ACNielsen sem stofnað var fyrir meira en 85 árum. Sérstaða fyrirtækisins felst í mælingum fyrir fyrirtæki á neytendamarkaði og á sviði fjölmiðlamælinga. Samstarf Capacent og ACNielsen snýr einkum að sölumælingum og vöruframsetningu í smásöluverslunum. Capacent Rannsóknir eru jafnframt aðilar að ESOMAR heimssamtökum markaðsrannsóknarfyrirtækja og taka mið af siðareglum þeirra og gæðastöðlum. Capacent Rannsóknir fengu ISO 9001 gæðavottun árið 2004.

Capacent Rannsóknir er aðili að WIN samtökunum, þar sem helstu sjálfstæðu rannsóknarfyrirtæki heimsins eru leidd saman. WIN samtökin voru stofnuð til að tryggja gæði, góða þjónustu og fagmennsku í alþjóðlegum rannsóknum. WIN fyrirtæki veita auðveldan aðgang að alþjóðlegum mörkuðum, staðbundna þekkingu, mikið úrval rannsóknarlausna, framúrskarandi þjónustu og djúpa aðferðafræðilega þekkingu.

Capacent Ráðgjöf
Með vaxandi samkeppni og auknum kröfum um frammistöðu fyrirtækja og stofnana er mikilvægt að greina breyttar aðstæður og bregðast rétt við. Hlutverk Capacent Ráðgjafar er að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að styrkja stöðu sína og starfsemi. Í því skyni býður Capacent Ráðgjöf upp á lausnir sem ná til allra þátta í rekstri, allt frá stefnumótun, fjármálum og upplýsingatækni, til árangursstjórnunar og þjálfunar.

Capacent leggur áherslu á að ráðgjafar tileinki sér viðurkennda aðferðafræði við lausnir verkefna. Meðal annars er unnið með hugmyndfræði tengda Dr. Ichak Adizes um Corporate Lifecycles, Michael Porter um stefnumótun, Kim og Mauborgne um Blue Ocean Strategy og Kaplan og Norton um Balanced Scorecard.

Capacent hefur hlotið gullvottun sem samstarfsaðili Microsoft (Microsoft Gold Certified Partner), sem er æðsta vottun sem samstarfsaðilar Microsoft geta hlotið. Capacent er jafnframt stærsti aðilinn í sölu og þjónustu Cognos hugbúnaðar á Íslandi og hefur um árabil veitt sérhæfða ráðgjöf við innleiðingu lausna á sviði stjórnendaupplýsinga, áætlanagerðar og samstæðuuppgjöra.

Capacent Ráðningar
Á hverju ári ræður Capacent hundruð einstaklinga í störf hjá fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum sem og hjá sveitarfélögum og opinberum stofnunum. Áhersla hefur verið lögð á ráðningar stjórnenda og háskólamenntaðra sérfræðinga. Capacent Ráðningar eru áberandi í auglýsingum og reka öfluga heimasíðu sem fær þúsundir heimsókna í hverri viku. Þetta gefur Capacent Ráðningum og viðskiptavinum gott aðgengi að stórum hópi umsækjenda hverju sinni.

Capacent hefur verið samstarfs- og umboðsaðili SHL á Íslandi frá árinu 2001 og var fyrst fyrirtækja hér á landi til að bjóða íslensku atvinnulífi upp á þýdd og stöðluð matstæki til notkunar í ráðningum. Starfsemi SHL er nú í meira en 50 löndum og fyrirtækið getur skilað niðurstöðum á meira en 30 tungumálum.

Allt starfsfólk Capacent Ráðninga hefur fengið þjálfun í viðurkenndum viðtalsaðferðum og í notkun annarra matstækja s.s. starfsgreiningaaðferða, persónuleikaprófa og keyrslu hæfnismiðstöðva til notkunar við val á starfsfólki.

Capacent á einnig og rekur ráðningastofuna Vinna.is sem var stofnuð árið 2000 og hefur einbeitt sér að mönnun framlínu í verslunar-, þjónustu, skrifstofu- og iðnaðarstörfum.

Print Bookmark and Share

Samstarfsaðilar