Capacent Gallup leggur mikið upp úr trúnaði og öruggri meðferð persónuupplýsinga. Allar upplýsingar, sem Capacent fær um einstaklinga eða fyrirtæki, eru varðveittar á öruggan hátt og gilda strangar reglur um notkun þeirra. Við framsetningu gagna er þess gætt að ekki sé hægt að rekja svör til einstaklinga. Að gagnaöflun lokinni eru upplýsingar um svarendur og svör þeirra geymd með aðskildum hætti. Jafnframt er því stýrt hvaða starfsmenn hafa aðgang að úrtökum.
Við leggjum áherslu á að viðhafa sömu trúnaðar- og öryggisráðstafanir gagnvart viðskiptavinum og svarendum.
Við erum rannsóknarfólk og reynum aldrei að selja þátttakendum í könnunum okkar neitt.
Við störfum eftir ströngum siðareglum sem settar eru af alþjóðasamtökum markaðsrannsóknarfyrirtækja – ESOMAR.Við virðum þau lög sem Persónuvernd starfar eftir og setur um geymslu og meðferð persónuupplýsinga og tilkynnum til Persónuverndar um þær kannanir sem lög kveða á um.
Capacent safnar aldrei upplýsingum um einstaklinga án þeirra vitneskju og samþykkis. Capacent veitir þriðja aðila aldrei upplýsingar um svarendur í könnunum án þeirra samþykkis.