Vinnustaðurinn

Eitt af mikilvægustu viðfangsefnum stjórnenda er að skapa starfsmönnum sínum hvetjandi og ánægjulegt starfsumhverfi . Starfsumhverfi fyrirtækis ræður miklu um það hvernig fyrirtækinu tekst að laða að sér hæft starfsfólk, halda í reynslu og þekkingu starfsmanna og laða fram það besta í starfsfólkinu. Samkeppnishæfni fyrirtækja byggist ekki síst á því hvernig stjórnendum tekst til í þessu efni.

Þótt lögð sé áhersla á mótun hvetjandi og jákvæðs starfsumhverfis er staðreyndin sú að stjórnendur hafa í raun fáar vísbendingar um gæði starfsumhverfisins. Mikil starfsmannavelta eða fjarvistir geta gefið vísbendingu um að eitthvað sé að í starfsumhverfi starfsmanna – þó það sé langt í frá óbrigðull mælikvarði sérstaklega þegar tækifærum á vinnumarkaði fækkar.  Auk þess gefa þessar upplýsingar stjórnenum ekki vitneskju um hvað það er í starfsumhverfinu sem virkar letjandi á starfsfólk.

Fjarvistir og starfsmannavelta eru gríðarlega kostnaðarsamar fyrir fyrirtæki. Sem dæmi er kostnaður við að missa starfsmann og ráða nýjan er oft talinn jafngilda einum til tveimur árslaunum starfsmannsins og mikill kostnaður fylgir einnig fjarvistum starfsamanna. Heildarkostnaður atvinnulífsins vegna fjarvista og starfsmannaveltu er því gríðarlega hár.

Til að fá upplýsingar um starfsumhverfi starfsmanna þarf að leita til þeirra sem best til þekkja, nefnilega starfsfólksins sjálfs. Þar skiptir mat þeirra starfsmanna sem starfa hjá fyrirtækinu mestu máli en einnig má fá mikilvægar upplýsingar frá þeim starfsmönnum sem hætt hafa störfum hjá fyrirtækinu.

Við hjá Capacent mælum með því að fyrirtæki fái þriðja aðila til að meta starfsumhverfi starfsmanna. Ef könnunin er gerð af stjórnendum sjálfum eða ef starfsmenn vita að stjórnendur hafa aðgang að svörum þeirra gæti fyrirtækið fengið ranga mynd af stöðunni. Trúnaður er ein mikilvægasta stoð starfsmannakannanna og starfsmenn Capacent leggja metnað sinn í að vinna að heilindum bæði fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is
Print Bookmark and Share

Lausnir

Vinnustaðargreining
Vinnustaðargreining, Gallup Workplace Audit (GWA), er greiningar- og rannsóknartæki sem greinir...meira
Q12
Q12 er stutt og hnitmiðuð starfsmannkönnun sem lýtur að mikilvægustu þáttum í stjórnunar...meira
Starfslokagreining
Að halda í reynslu og þekkingu starfsmanna er lykilatriði fyrir öll fyrirtæki og í raun forsenda...meira
Fyrirtækjamenning
Hugtakið fyrirtækjamenning er notað bæði óformlega um fyrirtækjabrag, stjórnunarstíl og anda innan...meira