Með aukinni samkeppni á öllum sviðum verður sífellt mikilvægara að fyrirtæki veiti þjónustu sem samræmist óskum viðskiptavinanna.
Capacent Gallup hefur um árabil aðstoðað íslensk fyrirtæki við að afla upplýsinga um hvernig viðskiptavinir þeirra upplifa þjónustuna. Þjónustukannanir Capacent Gallup byggja að hluta til á stöðluðum spurningum og gefur það fyrirtækjum kost á samanburði við frammistöðu annarra fyrirtækja sem mælt hafa þjónustu í samstarfi við Capacent Gallup undanfarin ár.
Capacent býður fjölmargar lausnir á sviði þjónustu. Þar má nefna CE11, Þjónustukönnun Gallup, eigindlegar rannsóknir og hulduheimsóknir.
Markmið þjónustukannana er að varpa ljósi á upplifun viðskiptavina af viðskiptum við fyrirtæki og áhrif þeirrar upplifunar á velgengni fyrirtækisins. Í framhaldi af slíkum þjónustukönnunum setja fyrirtæki sér markmið um bættan árangur. Árangur er síðan mældur reglulega til að meta hvort umbótastarf hefur skilað því sem til var ætlast.
Til að geta forgangsraðað aðgerðum er fyrirtækjum afar mikilvægt að fá vitneskju um hvaða þættir í þjónustu skipta viðskiptavini mestu. Þær upplýsingar - ásamt vitneskju um frammistöðu á viðkomandi sviði - eru öflugt stjórntæki og stuðla að því að fjármagn fyrirtækisins nýtist á markvissari hátt en ella.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is