(e.Outplacement)
Þegar starfsmanni er sagt upp starfi veldur það óhjákvæmilega vanda, sárindum og tilfinningaróti.Það er ekki tilgangur eða vilji stjórnenda fyrirtækja að valda slíkri röskun hjá starfsfólki sínu.
Þeir vilja því leggja sitt af mörkum til að draga úr skaðanum hjá þeim sem fyrir uppsögnum verða og hjálpa þeim að finna atvinnu á ný.
- Málin eru skoðuð og rædd með tilliti til ástands og stöðu viðkomandi. Einstaklingurinn fær tækifæri til að ræða afstöðu sína til uppsagnarinnar, hvernig honum líður og fjallað er um hvað telst eðlilegt í þeim efnum. Einnig er rædd afstaða hans til framtíðar og væntingar hans. Viðkomandi fær að gjöf bókina “Frá umsókn til atvinnu”.
- Greining á markaðsstöðu viðkomandi og leiðum sem eru í boði. Reynsla og hæfileikar einstaklings kortlagðir. Aðstoð við gerð ferilskrár, starfsumsóknar og gagna sem tengjast því.
- Einstaklingurinn er búinn undir starfsviðtöl og þjálfaður í framkomu í ráðningarviðtali.
- Boðið er upp á persónuleikamat til að greina styrkleika einstaklings, auk árangursríkrar markmiðssetningar. Markmið persónuleikamats er að einstaklingurinn átti sig betur á hvað hann hefur fram að færa og hvar hann þarf að styrkja sig, miðað við markmið sín fyrir framtíðina.