Stjórnenda- og sérfræðingaleit

(e. Headhunting)

Capacent býður upp á sérþjónustu sem lýtur að samskiptum við ákjósanlega umsækjendur fyrir ákveðið starf. Þessi sérþjónusta er sniðin að þörfum og óskum hvers fyrirtækis.
Ráðgjafar Capacent Ráðninga búa yfir virku og öflugu tengslaneti við markaðinn. Víðtækt tengslanet auk áralangrar fagþekkingar ráðgjafa, hefur skapað traust á markaði, þar sem trúnaður og fagmennska eru höfð að leiðarljósi.

Ferlið:

Skilgreina markmið og kröfur 

  • Tryggja sameiginlegan skilning á menningu og viðskiptaumhverfi viðskiptavinarins
  • Tryggja sameiginlegan skilning á hæfni, eiginleikum, þekkingu og reynslu þess sem leitað er eftir
  • Tryggja sameiginlegan skilning á starfslýsingu, starfskröfum og frammistöðuviðmiðum.
  • Búa til áætlun um leit að hæfum stjórnanda eða sérfræðingi

Finna og meta mögulega stjórnendur eða sérfræðinga

  • Leita í gagnabanka og tengslaneti
  • Skimun og mat á þeim sem koma til greina (kandídatar)
  • Undirbúa skýrslu um bakgrunn, styrkleika, veikleika og hæfnisþætti þeirra sem koma til greina
  • Fundur með viðskiptavini um kandídata

Viðtöl

  • Undirbúa með viðskiptavini viðtöl við þá sem koma til greina
  • Veita viðskiptavini aðstoð og ráðgjöf í gegnum viðtalaferlið
  • Umsagnaöflun
  • Ráðgjöf með val á þeim sem hitta á aftur

Val á stjórnanda eða sérfræðingi

  • Boða til loka viðtals
  • Ákveða ráðningu
  • Semja um laun og hlunnindi

Eftirfylgni

  • Tryggja ánægju viðskiptavinar
  • Endurgjöf á ferlið

 

Print Bookmark and Share