(e. Selection)
Val á starfsmanni er margþætt ferli þar sem m.a. er lagt mat á eftirfarandi:- Hefur umsækjandi nauðsynlega hæfni í það starf sem um ræðir?
- Eru persónulegir eiginleikar umsækjanda líklegir til að ýta undir eða hamla árangri hans í starfinu?
- Passar umsækjandi inn í hópinn í fyrirtækinu eða stofnuninni?
- Er fyrirtækið eða stofnunin sá vinnustaður sem hentar umsækjanda?
Líkur á að rétti aðilinn sé ráðinn í starf byggjast á þeim aðferðum sem notaðar eru við valið. Þegar beitt er stöðluðum, kerfisbundnum aðferðum er líklegra að ákvörðun verði tekin á grundvelli réttra upplýsinga.
Meðal þess sem er í boði:
Starfsgreining, prófílgreining, hæfnismódel, úttekt á stöðu, tillögur um aðferðir, stöðluð starfsviðtöl, persónuleikapróf, hæfnispróf og mat á arðsemi.