Flestir vilja starfsfólk sem sýnir frumkvæði, er gott í mannlegum samskiptum og hefur þjónustulund. Mörgum yfirsést að færni í mannlegum samskiptum tæknimanns og sölumanns eru varla sami hluturinn. Það fer eftir starfinu og umhverfinu hvað telst vera færni í mannlegum samskiptum.
Markmiðið með ráðningu á nýjum starfskrafti er að finna hæfasta einstaklinginn í viðkomandi starf. Lykillinn að því að finna þennan einstakling er að ákveða hvernig hann lítur út áður en ráðist er í að leita. Annars er nánast víst að valið mun ekki byggja á réttum forsendum.
Til að finna samsvörun á milli hæfni og starfs þarf því að greina starfið út frá :
Þegar þessu er lokið er farið í að skilgreina hverju er verið að leita út frá:
Auglýsing og mat á umsækjendum byggir síðan á þessari vinnu.
Greining er því lykilforsenda þess að ráða inn réttan einstakling. Aðrir nauðsynlegir hlekkir í ferlinu eru að lesa og skilja ferilskrár, viðtöl og viðtalstækni, fagleg umsagnaöflun, afkastamat ofl.

- Starfsþáttum og ábyrgð
- Umhverfi – innan og utan fyrirtækis
- Gildum fyrirtækis – fyrir hvað stendur það
Þegar þessu er lokið er farið í að skilgreina hverju er verið að leita út frá:
- Getu umsækjenda til að mæta grunnkröfum starfsins út frá starfsþáttum og ábyrgð
- Hæfni umsækjenda til að standa sig frábærlega miðað við kröfur starfs og umhverfis
- Samsvörun á milli gilda umsækjenda og fyrirtækis