Persónuleikapróf fyrir stjórnendur og sérfræðinga
OPQ32 (Occupational Personality Questionnaire 32) er persónuleikapróf sem metur 32 starfstengda eiginleika og hentar fyrir stjórnendur og sérfræðinga.Prófið er notað bæði við ráðningar og í starfsþróun, það er auðvelt í fyrirlögn og framsetning niðurstaðnanna er sérhönnuð fyrir þarfir atvinnulífsins.
Boðið er upp á nokkrar tegundir skýrslna:
- Prófíll
- Stjórnendaskýrsla
- Próftakaskýrsla
- Skýrsla um stjórnunarhæfni
- Skýrsla um hóphlutverk
- Skýrsla um leiðtogastíl og starfsstíl
Ráðningar
OPQ32 hentar vel til að meta hvaða umsækjandi hefur þá eiginleika sem þarf til að ná árangri í tilteknu starfi. OPQ32 eykur þannig líkurnar á að rétti einstaklingurinn sé valinn í starfið. Aukið samræmi milli þess sem starfið krefst og eiginleika starfsmannsins skilar sér í aukinni framleiðni og starfsánægju auk þess sem kostnaður við mistök í ráðningum minnkar.
Starfsþróun
OPQ32 veitir stjórnendum miklar og áreiðanlegar upplýsingar um starfsmenn með lítilli fyrirhöfn og hentar því vel í starfsþróun starfsmanna. Prófið getur aukið árangur í starfsmannastjórnun með því að aðstoða við ákvarðanatöku, gera þjálfun starfsmanna markvissari og minnka líkur á mistökum.
Prófið hjálpar til við að svara spurningum eins og:
- Hvaða eiginleika þarf starfsmaðurinn að þjálfa til að ná betri árangri í starfi?
- Hvernig leiðtogastíl er starfsmaðurinn líklegur til að tileinka sér?
- Er líklegt að tiltekinn starfsmaður hafi þá eiginleika sem þarf til að vera hæfur stjórnandi?
- Hvernig stjórnunarstíl er best að beita í samskiptum við starfsmanninn til að aðstoða hann við að ná hámarksárangri?
- Hvaða hlutverk er starfsmaðurinn líklegur til að taka að sér í hópstarfi?