(e. assessment center)
Matsmiðstöð er einkum notuð við val starfsmanna í stjórnunarstöður. Um er að ræða ítarlegt matsferli þar sem umsækjendur vinna verkefni sem endurspegla meginþætti viðkomandi stöðu.Verkefni sem notuð eru í matsmiðstöðvum geta verið af ýmsu tagi s.s.:
- Persónuleikapróf
- Stöðluð starfsviðtöl
- Hlutverkaleikir
- Starfsæfingar
Sérþjálfaðir sérfræðingar hjá Capacent aðstoða við að setja upp matsmiðstöð þar sem færni og hæfni umsækjanda er vegin og metin út frá mismunandi aðferðum. Af öllum aðferðum við ráðningar er Matsmiðstöð sú besta til að finna hæfasta umsækjandann fyrir tiltekið starf.