Góð ráð

Markaðssettu sjálfan þig

Það er ákveðið ferli að koma sér á framfæri á vinnumarkaði og má líkja því við markaðssetningu þar sem skráningin og ferilskráin eru markaðstækin.

Vandaðu skráninguna

Það er mjög mikilvægt að þú fyllir vandlega út upplýsingar um nám, starfsreynslu, þekkingu/kunnáttu og starfsóskir þegar þú skráir þig. Það eykur líkurnar á því að nafn þitt komi upp þegar við fáum í hendur starf þar sem  reynslu þinnar og menntunar er óskað.

Vel unnin ferilskrá og vönduð skráning getur orðið til þess að þú fáir starfið sem þú leitar að.

Láttu ná í þig

Við leggjum áherslu á að vera snögg að bregðast við óskum atvinnurekenda. Það er því mikilvægt að auðvelt sé að ná í þig ef starf við þitt hæfi berst okkur. Gefðu upp símanúmer þar sem svarað er og netfang. Ef ekki er svarað á daginn í þínu númeri, gefðu þá upp númer fyrir skilaboð.

Ferilskrá

Ferilskrá er til þess gerð að kynna einstaklinginn, skýra frá menntun, reynslu og áhugamálum ásamt því að staðfesta ímynd hans. Það er því mikilvægt að ferilskrá sé vel unnin.

Það sem koma þarf fram á ferilskrá:
  • Persónulegar upplýsingar um markmið í starfi
  • Menntun og starfsreynsla, eftir tímabilum
  • Tungumála- og tölvukunnátta
  • Annað, s.s. félagsstörf og áhugamál
  • Umsagnaraðilar
  • Mynd af umsækjanda – frjálst val. Rétt er að benda fólki á að hafa viðeigandi mynd.
  • Við mælum með að nýútskrifaðir einstaklingar sendi prófskjöl með ferilskránni.
  • Vistið ferilskrár undir nafni og kennitölu

Það sem ber að varast:
  • Of mikinn orðaflaum – hafa heldur stuttar og hnitmiðaðar setningar
  • Passa upp á stafsetningarvillur

Hafa ber í huga að ferilskráin er það fyrsta sem atvinnurekandi sér af umsækjanda.

Dæmi um uppsetningu á ferilskrá:
>>> Íslenska(Word skjal)
>>> Enska(Word skjal)

Kynningarbréf

Kynningarbréf er viðbót við ferilskrána þína. Flestir sem eru í atvinnuleit hafa vandaða ferilskrá sem gefur skýra mynd af einstaklingnum og hæfileikum hans. Þegar sótt eru um fleira en eitt starf á svipuðum tíma er í flestum tilfellum óþarfi að endurskrifa ferilskrána til að hún hæfi fleiru en einu starfi. Hins vegar getur verið gott að skrifa stuttan texta um það af hverju þú teljir þig passa í það starf sem þú ert að sækja um. Þannig gefur kynningarbréfið þér kost á því að nota sömu ferilskrána með umsókn þinni í önnur störf. Forðastu að hafa kynningarbréfið mjög almennt og vertu búin/n að kynna þér heimasíðu fyrirtækisins, hver sér um ráðningarmál eða nafn þess aðila sem sér um tiltekið starf ef það er auglýst og stílaðu bréfið á þann einstakling.

Dæmi um uppsetningu á kynningarbréfi má sjá hér. (Word skjal)

Print Bookmark and Share