Nýskráning

 Skráning hjá Capacent Ráðningum:

Vönduð og ítarleg skráning gerir þér kleift að sækja um störf á vegum Capacent.
Athugaðu að ekki eru öll störf auglýst og venjulega eru fleiri störf í boði en koma fram á heimasíðu okkar.
Til að geta sótt um störf, þarf að skrá sig.

Leitarkerfi okkar byggir á þessari skráningu.

Þú takmarkar möguleika þína ef þú nýtir þér ekki skráninguna til fulls.


Til viðbótar við skráninguna mælum við eindregið með að þú sendir okkur ferilskrá. Hún er persónulegri og þar getur þú sett fram ítarlegar upplýsingar um bakgrunn þinn.

Mikilvægt er að þú notir kennitöluna þína sem nafn á ferilskrána þegar þú vistar skjalið.



Nýskráning



Umsóknarferlið:

  • Capacent tekur við skráningum í gagnagrunn og umsóknum um ákveðin störf.
  • Ráðgjafi hefur samband við umsækjanda telji hann viðkomandi koma til greina í það starf sem í boði er.
  • Það er á ábyrgð umsækjanda að sækja um auglýst störf sem hann hefur áhuga á, telji hann sig uppfylla hæfniskröfur sem settar eru fram í auglýsingunni.
  • Umsækjanda er ráðlagt að fylgjast með auglýstum störfum á heimasíðu Capacent Ráðninga.
  • Hægt er að fylgjast með framvindu auglýstra starfa á vef Capacent Ráðninga.
  • Ráðgjafi fær samþykki umsækjanda til að senda ferilskrá til fyrirtækis. Umsagna er ekki leitað nema að fengnu samþykki umsækjenda.
  • Ráðgjafi upplýsir umsækjendur, sem hann hefur haft samband við að fyrra bragði, um framvindu einstakra mála.
  • Öllum umsækjendum um auglýst starf er svarað þegar gengið hefur verið frá ráðningu í starfið.
  • Óvirkar umsóknir falla sjálfkrafa úr gildi eftir 18 mánuði. Því er nauðsynlegt að uppfæra skráningu reglulega og senda nýja ferilskrá viljir þú vera áfram á skrá.
Print Bookmark and Share