Þrír nýir framkvæmdastjórar hjá FME
04.01.2012Ráðnir hafa verið framkvæmdastjórar þriggja nýrra eftirlitssviða hjá Fjármálaeftirlitinu. Um er að ræða svið eindareftirlits, vettvangsathugana og greiningar og áætlana. Fimm svið hafa á móti verið lögð niður og taka nýju sviðin þrjú við verkefnum þeirra.
Alls bárust 72 umsóknir um framkvæmdastjórastörfin. Við ráðningu og val naut Fjármálaeftirlitið aðstoðar Capacent. Fram fór fjölþætt mat á umsækjendum þar sem lagt var mat á mismunandi hæfniþætti, meðal annars með viðtölum, persónuleikaprófum og skriflegum verkefnum.
Framkvæmdastjórarnir nýju eru:
Halldóra E. Ólafsdóttir, sem verið hefur framkvæmdastjóri lífeyris- og verðbréfasjóðasviðs Fjármálaeftirlitsins frá því í apríl 2008, var ráðin framkvæmdastjóri eindareftirlitssviðs.
Lúðvík Þorgeirsson, sem starfað hefur hjá Actavis og þar áður hjá Tryggingamiðstöðinni hf. var ráðinn framkvæmdastjóri greiningar- og áætlanasviðs.
Sigurveig Guðmundsdóttir, hagfræðingur á lífeyris- og verðbréfasjóðasviði Fjármálaeftirlitsins, var ráðin framkvæmdastjóri vettvangsathugunarsviðs.
Allar fréttir