Sigrún Ragna ráðin forstjóri VÍS
18.08.2011Sigrún Ragna Ólafsdóttir hefur verið ráðin í starf forstjóra VÍS. Sigrún Ragna hóf störf hjá Íslandsbanka við stofnun hans í október 2008 er hún var ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs og tók sæti í framkvæmdastjórn.
Sigrún starfaði hjá Glitni Banka frá því síðla árs 2007 þar sem hún leiddi fjárhagssvið bankans. Hún starfaði um árabil hjá Deloitte hf. þar sem hún var meðal annars stjórnarformaður og einn eigenda. Sigrún Ragna er með víðtæka stjórnunar- og sérfræðireynslu og hefur unnið með fyrirtækjum úr flestum atvinnugreinum.
Hún mun hefja störf hjá VÍS 1. september næstkomandi.
Agla Sigríður Björnsdóttir og Ragnheiður Dagsdóttir héldu utan um ráðningarferlið fyrir hönd Capacent.
Allar fréttir