Ráðningasvið Capacent byggir á sameinuðum kröftum þriggja rótgróinna ráðningastofa; Liðsauka - sem stofnaður var árið 1982, Ráðgarður - 1988 og Gallup - 1997. Hjá okkur starfar stór og þrautreyndur hópur ráðgjafa sem styðst við bestu mögulegu aðferðir í öllu því sem snýr að ráðningum. Ráðgjafarnir búa yfir víðtækri þekkingu á íslensku atvinnulífi og leitast við að veita bæði fyrirtækjum og einstaklingum persónulega þjónustu þar sem fyllsta trúnaðar er gætt. Allt starfsfólk Capacent Ráðninga hefur fengið þjálfun í viðurkenndum viðtalsaðferðum og í notkun annarra matstækja s.s. starfsgreiningaaðferða, persónuleikaprófa og keyrslu hæfnismiðstöðva til notkunar við val á starfsfólki.
Rétt ráðning skiptir sköpum
Markmiðið með ráðningu nýs starfsmanns hlýtur að vera að finna hæfasta einstaklinginn í viðkomandi starf. Gott samræmi milli þess sem starfið krefst og eiginleika starfsmannsins skilar sér í aukinni framleiðni og starfsánægju auk þess sem kostnaður vegna mistaka í ráðningum minnkar. Röng ráðning er dýrkeypt en stundum er talað um að hún kosti tvöföld árslaun þegar allir þættir eru taldir til.
Á hverju ári ráða Capacent Ráðningar hundruð einstaklinga í störf hjá fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum sem og hjá sveitarfélögum og opinberum stofnunum. Áhersla hefur verið lögð á ráðningar forstjóra og framkvæmdastjóra, millistjórnenda, háskólamenntaða sérfræðinga og í skrifstofustörf. Capacent Ráðningar eru áberandi í auglýsingum og búa yfir öflugri heimasíðu sem fær þúsundir heimsókna í hverri viku. Capacent á einnig og rekur ráðningastofuna Vinna.is sem var stofnuð árið 2000 og hefur einbeitt sér að ráðningum starfsfólks í verslunar-, þjónustu-, skrifstofu- og iðnaðarstörf. Þetta gefur okkur og viðskiptavinum einkar gott aðgengi að stórum hópi umsækjenda hverju sinni.