Starfsfólk

Arnar Jónsson
Partner
540 1244
840 1244
Senda tölvupóst

Sérsvið: Stefnumótun, rekstrar- og stjórnsýsluúttektir og fjármál ríkis og sveitarfélaga
Menntun: M.A. stjórnsýslufræði, B.A. stjórnmálafræði
Arnar er með MA próf í stjórnsýslufræðum frá Birmingham háskóla í Bretlandi og BA próf í stjórnmálafræði frá HÍ. Hann hefur einkum sinnt verkefnum á sviði stefnumótunar, rekstrar- og stjórnsýsluúttektum og fjármálum ríkis og sveitarfélaga. Arnar hefur verið ráðgjafi stjórnenda ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga og félagasamtaka. Hann starfaði sem stjórnsýsluráðgjafi hjá ParX frá stofnun þess fyrirtækis en hóf störf við ráðgjöf hjá PricewaterhouseCoopers árið 1998. Arnar var fagstjóri stjórnsýsluráðgjafar frá árinu 2000 og partner frá árinu 2006. Hann var sérfræðingur á fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins frá 1995-1998.
Arnar Pálsson
Associate Partner
540 1000
840 4330
Senda tölvupóst

Sérsvið: Stjórnsýsluráðgjöf, stefnumótun, hvítskýrslur, stjórnskipulagsbreytingar og samfélagsmiðlun.
Menntun: MSc í stjórnun. MA í bókmenntafræði.
Arnar starfaði áður sem sérfræðingur í félagsmálaráðuneyti, ráðgjafi hjá ParX – viðskiptaráðgjöf IBM og verkefnisstjóri hjá forsætisráðuneyti. Í verkefnum sínum hefur Arnar starfað fyrir fjölda ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga á sviði stefnumótunar og rekstrar. Arnar hefur einnig sinnt rekstrar- og stjórnsýsluúttektum og tekið að sér verkefnisstjórnun á sviði rafrænnar stjórnsýslu. Arnar tístir á Twitter undir nafninu palsson.
Ágústa Björnsdóttir
Ráðgjafi
5401000
8437746
Senda tölvupóst

Sérsvið: Rekstur og fjármál
Menntun: Diplomanám í viðskipta- og rekstrarfræði
Ágústa starfaði hjá Arionbanka og forverum hans í 28 ár og gegndi þar ýmsum störfum, lengst af stjórnunarstörfum. Síðustu 6 árin var hún útibússtjóri á Egilsstöðum. Ágústa hefur lokið diploma námi í viðskipta- og rekstrarfræði frá H.Í. og sótt fjölmörg námskeið á vegum Arionbanka í gegnum árin, eins og t.d. Stjórnunarskóla sem bankinn setti upp fyrir stjórnendur í samvinnu við Háskólann í Reykjavík. Ágústa sat í bæjarstjórn og bæjarráði Austur-Héraðs (nú Fljótsdalshérað), ásamt ýmsum nefndum á vegum sveitarfélagsins. Þar vann hún mikið að æskulýðs- og íþróttamálum ásamt skólamálum. Einnig hefur hún setið í stjórnum fyrirtækja sem og áhugamannafélögum.
Árni Haukur Árnason
Ráðgjafi.
5401000
8641050.
Senda tölvupóst

Sérsvið: Upplýsingatækni, hugbúnaðarleyfi
Menntun: M.Sc. í upplýsingatækni
Árni Haukur Árnason, ráðgjafi á sviði upplýsingatækni og hugbúnaðarleyfa. Hann er með meistaragráðu í upplýsingatækni (Information Technology - Multi Media) frá Árósarháskóla og MCP í Licensing og Software Asset Management. Hann hefur á undanförnum árum starfað sem sérfræðingur hjá Opnum kerfum og Teris.
Ása Björk Jónsdóttir
Ráðgjafi
5401221

Senda tölvupóst

Sérsvið: Stjórnendaupplýsingar
Menntun: BSc í rekstrarverkfræði
Ása Björk er með B.Sc.-gráðu í rekstrarverkfrði frá Háskólanum í Reykjavík og er að ljúka M.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur réttindi sem atvinnuflugmaður og hefur starfað sem flugkennari.
Ása Karín Hólm
Partner
540 1073
861 0090
Senda tölvupóst

Sérsvið: Stefnumótun, Markaðs- og þjónustumál, Mannauðsmál
Menntun: Cand.Merc.
Ása Karin er með Cand.merc frá Odense Universitet. Hún hefur reynslu af ráðgjöf fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina á sviði stefnumótunar, skipulags, markaðs- og þjónustumála. Í gegnum ráðgjafaferilinn hefur hún komið mikið að innleiðingu á stjórnsýslubreytingum, stefnumótun og ýmisskonar breytingum hjá fyrirtækjum og stofnunum. Verkefni sem Ása Karín hefur komið að eru m.a. innleiðing stefnumiðaðs árangursmats, mótun upplýsingastefnu, kortlagning ferla ofl. hjá fjöldamörgum stofnunum og fyrirtækjum. Ása Karín hefur einnig komið töluvert að þjálfun og kennslu fyrir Capacent. Ása Karín hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent síðan 2000.
Ásgeir Runólfsson
Ráðgjafi
540 1000
8228384
Senda tölvupóst

Sérsvið: Fjármál fyrirtækja og opinberra aðila, arðsemisúttektir og rekstrarúttektir. Gerð viðskiptaáætlana og verðmata.
Menntun: B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands
Ásta Bjarnadóttir
Ráðgjafi, Associate Partner
5401000
899 6063
Senda tölvupóst

Sérsvið: Mannauðsstjórnun, vinnu- og skipulagssálfræði, stjórnun og samstarf háskóla.
Menntun: PhD í vinnu- og skipulagssálfræði.
Ásta hefur stýrt starfsmanna- og mannauðsmálum hjá Háskólanum í Reykjavík, Íslenskri erfðagreiningu og Hagkaupum auk þess að stunda kennslu og rannsóknir á sviði stjórnunar og mannauðsstjórnunar. Hún er einn af stofnendum CRANET rannsóknaverkefnisins um íslenska mannauðsstjórnun og hefur aðstoðað mörg fyrirtæki og stofnanir við að ná árangri gegnum betri stjórnun mannauðs. Meðal sérsviða Ástu í ráðgjöf er að nýta hin fimm tæki mannauðsstjórnunar, þ.e. mönnun, fræðslu, endurgjöf, launastjórnun og innri boðskipti, til að innleiða stefnu fyrirtækja og stofnana og styðja sókn þeirra að mikilvægum markmiðum. Í janúar 2012 kom út í 2. útgáfu hjá JPV-útgáfu bókin Starfsmannaval eftir Ástu og hún hefur starfað í fjölmörgum hæfnis- og valnefndum vegna ráðninga í lykilstöður. Ásta er með doktorspróf í vinnu- og skipulagssálfræði frá frá University of Minnesota 1997.
Birgir Hrafn Hafsteinsson
Ráðgjafi
540 1000
861 8168
Senda tölvupóst

Sérsvið: Fjárhagslíkön, Virðisstjórnun, Áætlanagerð
Menntun: MBA, B.Sc. Tölvunarfræði
Birgir Hrafn er tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands, með MBA gráðu frá Virginia Tech Pamplin School of Business. Birgir hefur einkum unnið við rekstrar- og fjármálaráðgöf, viðskiptalíkön, hvatakerfi og hlunnindi. Auk þess hefur hann sinnt stundakennslu við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Birgir hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent síðan 2006.
Birgir Karl Óskarsson
Ráðgjafi
5401000
6910101
Senda tölvupóst

Sérsvið: Reikningsskil, verðmöt, áætlanagerð, áreiðanleikakannanir
Menntun: Löggiltur endurskoðandi
Birgir Karl Óskarsson er fjármálaráðgjafi hjá Capacent. Sérsvið hans eru ráðgjöf varðandi reikningsskil og skatta, verðmöt, áætlanagerð og áreiðanleikakannanir. Birgir Karl er löggiltur endurskoðandi og starfaði áður sem endurskoðandi hjá KPMG. Einnig hefur hann starfað fyrir dótturfélög Icelandair Group og sem sjálfstæður uppgjörsaðili og endurskoðandi."
Bjarki Elías Kristjánsson
Ráðgjafi
540 1232
840 1232
Senda tölvupóst

Sérsvið: Upplýsingatækni, Stjórnendaupplýsingar, Vöruhús gagna
Menntun: B.Sc. Tölvunarfræði
Bjarki er með B.Sc. Í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein frá Háskólanum í Reykjavík. Hann er að ljúka M.Sc. í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Bjarki hefur viðamikla reynslu af hönnun og þróun upplýsingakerfa svo sem flotaeftirlitskerfa (mobile resource management), virðisaukandi þjónusta fyrir farsímakerfi og IPTV/3G lausna. Bjarki hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent síðan 2009.
Björn Símonarson
Ráðgjafi
5401000
822 2551
Senda tölvupóst

Sérsvið: Öryggisúttektir, veikleikaprófanir á upplýsingakerfum.
Menntun: Rafmagnstæknifræðingur
Björn er ragmagnstæknifræðingur frá Syddansk Universtet (2002). Eftir útskrift starfaði hann fyrst hjá Kögun við íslenska loftvarnarkerfið (2002-2006) og þar á eftir Industria (2006-2008). Frá 2008 starfaði Björn hjá Varnarmálastofnun að mestu við öryggismál tölvu- og fjarskiptakerfa. Við niðurlagningu Varnarmálastofnunar fluttist hann ásamt verkefnum til Ríkislögreglustjóra þar sem hann starfaði fram í nóvember 2011.
Björt Ólafsdóttir
Ráðgjafi
5401000
840 1224
Senda tölvupóst

Sérsvið: Mannauðsmál, stefnumótun
Menntun: M.A. í mannauðsstjórnun, B.A. í sálfræði
Björt lauk BA prófi í sálfræði (með kynjafræði sem aukagrein) frá HÍ árið 2007. Þar á eftir hélt hún utan í Mastersnám í mannauðsstjórnun í Háskólanum í Lundi. Hún lauk því námi árið 2008. Síðastliðin tvö ár hefur hún sótt námskeið á meistarastigi í Heilsuhagfræði við HÍ, ásamt vinnu. Áður en Björt kom til Capacent árið 2011 vann hún hjá Vinun - ráðgjafar og þjónustumiðstöð. Frá árinu 2005 til 2009 vann hún á Geðdeild Landspítalans og var þar áður um skamma hríð hjá Ríkisútvarpinu við framkvæmd og stjórnun útsendinga.
Brynjólfur Borgar Jónsson
Ráðgjafi
540 1000
825 6170
Senda tölvupóst

Sérsvið: Analytics, tölfræðilegar greiningar á fyrirliggjandi gögnum, innleiðing greiningarferla, bætt ákvarðanataka.
Menntun: M.Sc. Tölfræði og aðgerðarannsóknir, B.A. Sálfræði
Elvar Steinn Þorkelsson
Ráðgjafi
5401000

Senda tölvupóst

Sérsvið: Upplýsingatækni
Menntun: MBA, tölvunarfræðingur.
Elvar var einn af stofnendum Teymis og var framkvæmdastjóri fyrirtækisins árin 1995-2002. Elvar setti á laggirnar og var framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi árin 2003-2006. Að því búnu starfaði hann sem stjórnandi hjá Microsoft í Rússlandi og Austur-Evrópu og höfuðstöðvum Microsoft í Þýskalandi um nokkurra ára skeið. Elvar útskrifaðist í sumar sem leið með meistarapróf í viðskiptafræðum (MBA) frá Kentháskólanum í Canterbury. Elvar er jafnframt tölvunarfræðingur að mennt frá Kaliforníuháskóla.
Guðmundur Árni Árnason
Ráðgjafi
540 1234
840 1234
Senda tölvupóst

Sérsvið: Fjármál og rekstur, Upplýsingatækni, Aðfangakeðjan
Menntun: MBA, M.Sc. Upplýsingatækni, B.Sc. Viðskiptafræði
Guðmundur er með MBA með áherslu á stjórnun upplýsingakerfa og stjórnun, M.Sc. í upplýsingatækni frá Bentley University og B.Sc. í viðskiptafræði (áhersla á vörustjórnun) frá Háskólanum í Reykjavík. Guðmundur er ráðgjafi á sviði rekstar og fjármála, upplýsingatækni, vörustjórnunar og stjórnendaupplýsinga, Guðmundur hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent síðan 2008.
Guðrún Antonsdóttir
Ráðgjafi
5401000
8410248
Senda tölvupóst

Sérsvið: Fjármál fyrirtækja og opinberra aðila, arðsemisúttektir og rekstrarúttektir. Gerð viðskiptaáætlana, verðmata og virðisrýrnunarprófa.
Menntun: M.Sc. Fjármál og stefnumótun, Cand.Oecon Viðskiptafræði
Guðrún Anna er fjármálaráðgjafi hjá Capacent. Hún er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og er með mastersgráðu í fjármálum og stefnumótun frá Copenhagen Business Shchool. Guðrún Anna starfaði í 8 ár hjá Kaupþingi og vann einkum við áhættustýringu og gerð greininga á fyrirtækjum og bönkum.
Gunnar Skúlason
Ráðgjafi
5401000
8668815
Senda tölvupóst

Sérsvið: Rekstur og fjármál, aðgerðarannsóknir
Menntun: M.Sc. í Rekstrarverkfræði, B.Sc. í Iðnaðarverkfræði.
Hafliði Sævarsson
Partner
540 1081
896 5568
Senda tölvupóst

Sérsvið: Stjórnendaupplýsingar, Árangursstjórnun, Áætlanagerð
Menntun: B.Sc. Kerfisfræði
Hafliði er kerfisfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Hafliði er ráðgjafi á sviði stjórnendaupplýsinga og áætlanagerða. Hafliði hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent síðan 1997.
Hallbjörn Björnsson
Partner
540 1093
862 2539
Senda tölvupóst

Sérsvið: Uppgjörskerfi, Áætlanalíkön, Fjármál og rekstur
Menntun: B.Sc. Aðfangastjórnun
Hallbjörn með B.Sc. í vöruferilsstjórnun frá Háskóla Íslands. Hallbjörn er ráðgjafi á sviði samstæðuuppgjöra, áætlanagerðar, árangursstjórnunar og auk þess að sinna fjármálaráðgjöf. Hallbjörn hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent frá fyrri hluta 1998.
Halldór Valgeirsson
Ráðgjafi
540 1000
896 7164
Senda tölvupóst

Sérsvið: Analytics, bætt ákvarðanataka á sviði sölu- og markaðsmála
Menntun: M.Sc. rannsóknaraðferðir í sálfræði, B.A. Sálfræði
Hjalti Þór Kristjánsson
Ráðgjafi
540 1000
860 1069
Senda tölvupóst

Sérsvið: Rekstur og fjármál, Innkaupamál
Menntun: Cand Oecon Viðskiptafræði
Hjalti er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hjalti hefur aðallega starfað í árangursstjórnun, áætlanagerð og ferlaþróun, auk verkefna tengdum upplýsingatækni. Hjalti hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent frá 2007.
Hólmar Svansson
Ráðgjafi
540 1038
860 1038
Senda tölvupóst

Sérsvið: Stjórnun og stefnumótun, Þjónustu- og sölustjórnun, Breytingastjórnun
Menntun: MBA, B.S. Iðnaðarverkfræði
Hólmar er iðnaðarverkfræðingur með MBA gráðu frá Purdue University í Bandaríkjunum. Hólmar hefur reynslu úr framleiðslu og þjónustufyrirtækjum á sviði neytendavöru, flutningaþjónustu og sjávarútvegs. Hólmar var um árabil framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og starfaði þar í tengslum við fjölbreytt fyrirtæki, stofnanir og frumkvöðla. Hann hefur komið að og stýrt verkefnum á sviði stefnumótunar, árangurs- og þjónustustjórnunar hjá stofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum. Hann hefur einnig þjálfað verkefna- og sölustjórnun. Hólmar hóf störf hjá Capacent ráðgjöf í ársbyrjun 2006.
Ottó Magnússon
Partner
540 1094
861 1891
Senda tölvupóst

Sérsvið: Upplýsingatækni, Fjármál og rekstur, Innkaupamál
Menntun: Cand Oecon. Viðskiptafræði
Ottó er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands, ásamt því að vera með löggildingu í verðbréfamiðlun. Ottó er ráðgjafi á sviði rekstrar og upplýsingatækni og hefur sinnt fjölmörgum verkefnum á sviði innkaupamála, þarfagreininga, vals og innleiðingar á upplýsingakerfum. Hann hefur einnig annast verkefni á sviði útvistunar launaþjónustu, ferlagreininga, vörustjórnunar, stefnumótunar í upplýsingatækni og stjórnendaupplýsinga. Ottó hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent frá 2001.
Ólafur Róbert Rafnsson
Partner
540 1090
840 2000
Senda tölvupóst

Sérsvið: Upplýsingaöryggi, rekstur og stjórnun uppýsingakerfa.
Ólafur er kerfisfræðingur frá Rafiðnaðarskólanum, er með MCSE gráðu frá Microsoft og hefur auk þess lokið ýmsum námskeiðum á sviði öryggismála, SharePoint og í almennum rekstri. Ólafur hefur starfað hjá Capacent frá árinu 1998 og hefur gegnt starfi forstöðumanns upplýsingatæknimála KPMG, ráðgjafa í öryggismálum með áherslu á stjórnkerfi upplýsingaverndar (ISO27001), Úthýstur Öryggisstjóri hjá Tryggingamiðstöðinni 2006, framkvæmdastjóri hjá Capacent IT Services 2006-2008, CIO hjá Capacent International og gegnir nú starfi sem ráðgjafi í upplýsingatækni hjá Capacent.
Óttar Snædal
Ráðgjafi

823 2127
Senda tölvupóst

Sérsvið: Fjármál fyrirtækja og opinberra aðila, arðsemisúttektir og rekstrarúttektir. Gerð viðskiptaáætlana og verðmata.
Menntun: B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands. M.Sc. í hagfræði frá Barcelona Graduate School of Economics.
Sigurbergur Árnason
Ráðgjafi
5401000
8211873
Senda tölvupóst

Sérsvið: Microsoft leyfismál SAM
Menntun: MCP, MCPS, MCNPS, MCTS license specialist
Sigurbergur Árnason er sérfræðingur í Microsoft hugbúnaðarleyfum. Hann hefur starfað við sérhæfða ráðgjöf á því sviði síðan 2004 og hefur vottun frá Microsoft.
Sigurður Hjalti Kristjánsson
Partner
540 1236
842 2271
Senda tölvupóst

Sérsvið: Viðsnúningur í rekstri fyrirtækja, vörustjórnun, verkefnastjórnun
Menntun: MBA, C.Sc. véla- og iðnaðarverkfræðii
Sigurður er MBA frá Háskólanum í Reykjavík og C.Sc. véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands. Sigurður var 3 ár hjá VBS fjárfestingarbanka og leiddi þar fjárstýringu, fjármögnun og rekstur auk úrvinnsla mála á skulda- og eignahlið bankans í kjölfar kerfishrunsins 2008. Þar áður starfaði hann í 10 ár sem ráðgjafi á sviði vörustjórnunar og upplýsingatækni.
Sigurjón Þórðarson
Ráðgjafi
540 1000
893 1808
Senda tölvupóst

Sérsvið: Liðsheild, Stjórnendaþróun, Ráðgjöf í kjölfar uppsagna, Breytingastjórnun
Menntun: MBA, Kennslufræði
Sigurjón er MBA, kennari, matreiðslumeistari og hefur meðal annars verið í eigin rekstri. Hann hefur sérhæft sig í þjálfun liðsheilda, tengingu starfsmanna við gildi og tekið þátt í innleiðingu stefnumótunar m.a. sem stjórnandi vinnuhópa. Sigurjón hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent síðan 2005.
Steingrímur Sigurgeirsson
Markaðsstjóri og ráðgjafi
540 1000
896 6273
Senda tölvupóst

Menntun: MPA, B.A. stjórnmálafræði
Steingrímur er með MPA-gráðu frá Harvard Kennedy School og B.A. gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Nám í þýsku og stjórnmálafræði við Trier-háskóla í Þýskalandi. Steingrímur starfaði sem blaðamaður og síðar fréttastjóri á Morgunblaðinu í hálfan annan áratug og var aðstoðarmaður menntamálaráðherra 2004-2009. Hann hóf störf hjá Capacent í ársbyrjun 2010.
Styrmir Geir Jónsson
Kerfisstjóri og ráðgjafi
540 1000
864 3491
Senda tölvupóst

Sérsvið: Microsoft og öryggismál
Menntun: MCSE + Security og Comptia Security +
Styrmir starfaði hjá Varnaliðinu frá árinu 1994 sem Chief IT Administrator til ársins 2006. Starfaði Styrmir hjá Opnum Kerfum sem ráðgjafi þar sem hann sá um rekstur upplýsingakerfa ýmissa fyrirtækja og stofnana, hjá Capacent International sem CTO og starfar nú hjá Capacent sem ráðgjafi.
Sæmundur Melstað
Ráðgjafi
5401000
8401210
Senda tölvupóst

Sérsvið: upplýsingatækni, stjórnendaupplýsingar, vöruhús gagna og rekstur upplýsingakerfa
Menntun: B.Sc. Tölvunarfræði
Sæmundur Melstað er með BS-gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Hann var upplýsingatæknistjóri Húsasmiðjunnar árin 1991-2001 og síðan sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá sama fyrirtæki árin 2001-2011. Sæmundur er með um 25 ára reynslu í rekstri á upplýsingatæknikerfum, innleiðingu hugbúnaður og nýtingu upplýsingatækni sem samkeppnistækis.
Theódór R. Gíslason
Ráðgjafi
5401000
8925165
Senda tölvupóst

Sérsvið: Öryggismál
Vilmar Pétursson
Partner
540 1026
891 9999
Senda tölvupóst

Sérsvið: Leiðtogaþróun, Markþjálfun
Menntun: M.Sc. Evrópustjórnun, B.A. Félagsfræði
Vilmar er BA í félagsfræði og félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og með MS.c gráðu í Euromanagement frá Norwegian School of Management. Vilmar er leiðtoga- og stjórnendaþjálfari hjá Capacent. Vilmar hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent frá 2000.
Víðir Ársælsson
Partner
540 1054
860 1054
Senda tölvupóst

Sérsvið: Stjórnendaupplýsingar, Rekstur og fjármál
Menntun: Cand Oecon. Viðskiptafræði
Víðir er viðskiptafræðingur (cand. Oecon) frá Háskóla Íslands. Víðir er ráðgjafi á sviði árangursstjórnunar og áætlanagerðar. Víðir hefur starfað sem ráðgjafi hjá Capacent frá 2005.
Þórður Sverrisson
Partner
540 1077
896 6520
Senda tölvupóst

Sérsvið: Stefnumótun, Skipulag og stjórnun, Markaðsmál
Menntun: Cand.Merc. Rekstrarhagfræði, Cand. Oecon. Viðskiptafræði
Þórður er hópstjóri í stefnumótunarhópi Capacent. Hann er Cand Oecon frá HÍ og Cand Merc frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS). Hefur starfað við ráðgjöf á sviði stefnumótunar, skipulags og stjórnunar, og markaðsmála í 15 ár, en var áður m.a. markaðsstjóri Íslandsbanka fyrstu fimm ár þess banka. Hefur áralanga og fjölbreytta reynslu á þessu sviði, en er auk þess aðjúnkt í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands.
Þröstur Sigurðsson
Partner

772 7997
Senda tölvupóst

Sérsvið: Fjármál fyrirtækja og opinberra aðila, arðsemisúttektir og rekstrarúttektir. Gerð viðskiptaáætlana og verðmata.
Menntun: Cand.Oecon, M.Sc. í fjármálum
Print Bookmark and Share