Með vaxandi samkeppni og auknum kröfum um frammistöðu fyrirtækja og stofnana er mikilvægt að greina breyttar aðstæður og bregðast rétt við.
Hlutverk Capacent Ráðgjafar er að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að styrkja stöðu sína og starfsemi. Í því skyni býður Capacent Ráðgjöf upp á lausnir sem ná til allra þátta í rekstri, allt frá stefnumótun, fjármálum og upplýsingatækni, til árangursstjórnunar og þjálfunar.
Auk þess hefur Capacent gullvottun sem samstarfsaðili Microsoft (Microsoft Gold Certified Partner), sem er æðsta vottun sem samstarfsaðilar Microsoft geta hlotið. Capacent er jafnframt stærsti aðilinn í sölu og þjónustu Cognos hugbúnaðar á Íslandi og hefur um árabil veitt sérhæfða ráðgjöf við innleiðingu lausna á sviði stjórnendaupplýsinga, áætlanagerðar og samstæðuuppgjöra.
Nánari upplýsingar veitir Ingvi Þór Elliðason (Ingvi@capacent.is)