Upplýsingatækni

Það er hverju fyrirtæki nauðsynlegt að hafa skipulag og rekstur upplýsingatæknimála í góðu lagi. Capacent hefur þróað margvíslegar lausnir á sviði upplýsingatækni. Þær snúa meðal annars að stefnumótun, stjórnun, kostnaðargreiningu, þarfagreiningu, vali og innleiðingu á hugbúnaði og ferlagreiningu.

Í stefnumótun er megintilgangurinn að skerpa á framtíðarsýn, draga fram vilja stjórnenda til upplýsingatæknideildarinnar og tækninnar sem slíkrar. Stefnumótun í upplýsingatækni er ósköp lík hefðbundinni stefnumótun nema það að hún snýst um tækni og um það að tryggja að upplýsingatæknideildin sé að vinna í takt við aðrar einingar fyrirtækisins, þ.e. búa til samtengingu milli stefnu fyrirtækisins og stefnu í upplýsingatækni. Rannsóknir hafa sýnt að upplýsingatæknideildir eiga það til að einangrast innan fyrirtækja og stofnana og vera ekki virkir þátttakendur. Mikil verðmæti felast í því tengja þær saman við önnur svið með því að breyta skipulagi þannig að menn tali sama tungumál.

Ráðgjafar Capacent annast einnig þarfagreiningar og kostnaðargreiningar á rekstri upplýsingamála. Vel unnin þarfagreining er lykill að vel heppnuðu vali og innleiðingu á nýjum upplýsingakerfum, jafnt fyrir opinbera geirann sem einkafyrirtæki. Án þarfagreiningar og skýrt skilgreindra markmiða, er mun erfiðara að henda reiður á því sem á að uppfylla með nýju kerfi. Hætt er við að kostnaður verði meiri en áformað var í upphafi auk þess sem líklegra er að verkið tefjist og skili þannig síður þeim ávinningi sem vænst var.



Nánari upplýsingar veita:


Ottó Magnússon (otto.magnusson@capacent.is)
Ólafur Róbert Rafnsson (olafur.rafnsson@capacent.is)
Print Bookmark and Share

Lausnir

Þjónustukannanir
Þjónustukönnununum Capacent Gallup er ætlað að varpa ljósi á upplifun viðskiptavina af þjónustu...meira
Þarfagreining og val á upplýsingakerfum
Vel unnin þarfagreining er lykill að vel heppnuðu vali og innleiðingu á nýju upplýsingakerfi. meira
Verkstjórn og aðstoð við innleiðingu upplýsingakerfa
Færst hefur í aukana að fyrirtæki fái ráðgjafa Capacent til að sinna verkefnisstjórn, vera...meira
Öryggis- og varnarprófanir
Marga veikleika er að finna í flestum upplýsingakerfum og það getur reynst erfitt að viðhalda öryggi...meira
Gagnavöruhús
Þau gögn sem verða til innan fyrirtækja eru verðmæt eign og mikilvægt er að aðgengi að þeim sé...meira
Health Portal
Tilgangur Health Portal er að gefa notendum yfirsýn yfir heilbrigði stjórnendaupplýsinga og auðvelda...meira
Keyrslustjóri
Tilgangur Keyrslustjóra er að gera notendum kleyft að fylgjast með keyrslum og setja þær í gang...meira