Þjónusta & markaðsmál

 

 

Samkeppni á öllum mörkuðum hefur harðnað undanfarin ár og um leið hafa kröfur viðskiptavina aukist um vörur og þjónustu sem sniðin er að þeirra þörfum. Skýr markaðsstefna, vel skilgreindur markhópur og skilvirk útfærsla markaðsáætlana eru því lykilþættir fyrir árangur fyrirtækja og stofnana. „Í dag er mikilvægt fyrir fyrirtæki að skynja þarfir markaðarins, vita hver sé ímynd þeirra og þekkja viðhorf viðskiptavina gagnvart þeim. Hins vegar hafa forsvarsmenn fyrirtækja sjaldnast stjórn á þessum þáttum og vita ekki alltaf hvað er að þegar kemur að markaðsmálum. Þá skortir oft upplýsingar um markaðinn og vita ekki nægjanlega hvernig þarfir markaðarins eru að breytast,“ segir Þórður Sverrisson.

 

Ráðgjafar Capacent vinna með fyrirtækjum á öllum sviðum við skipulagningu og stjórnun markaðsmála með áherslu á mótun og framkvæmd markaðsstefnu. Lykilatriðið er aðstoð við gerð markaðsáætlana, þar sem tilgreindar eru aðgerðir um öflun upplýsinga um markaðinn, áherslur á einstaka markhópa, markaðssetningu, sölu, stjórnun viðskiptatengsla, þjónustu og mat á árangri. Markaðshringurinn er aðferðafræði sem hefur verið notað með góðum árangri þar sem dregnir eru fram allir meginþættir í markaðslegri vinnu fyrirtækja. Greining leiðir það í ljós hvort veikleikinn eða rót vandans liggja í ófullnægjandi markaðsrannsóknum, markaðsáætlunum eða skilgreiningum á markhópum. Jafnframt skilar hún niðurstöðu um hvort lausnirnar séu nægjanlega vel skilgreindar, hvort starfsfólk sé nægjanlega vel þenkjandi í sínum störfum og hvort þjónustan get verið betri.



Betri ímynd og þjónusta


Með því að átta sig á hvar betur megi gera í þjónustu og markaðsmálum næst fram margvíslegur ávinningur sem felst í skýrari sýn á stefnu og framtíð. Fyrirtæki fá betri sýn á markaðinn, ímynd þeirra verður betri og þjónustan batnar. Þau ná betur að skilgreina sína markhópa, markaðsrannsóknir og þjónustukannanir verða markvissari og auðveldara verður að stýra viðskiptatengslum og meta árangur þeirra.



Nánari upplýsingar:



Þórður Sverrisson (thordur.sverrisson@capacent.is)

 

 

 

Print Bookmark and Share

Lausnir

AdEval
AdEval* er leiðandi aðferðafræði til að mæla áhrifamátt auglýsinga. Capacent Gallup býður nú upp á...meira
Markaðshringurinn
Markaðshringurinn er greiningartæki sem hjálpar fyrirtækjum við að átta sig á hvort að samhljómur er...meira
Fjölmiðlakannanir
Capacent Gallup framkvæmir reglulegar mælingar á notkun almennings á helstu fjölmiðlum landsins...meira
Sveitarfélagakannanir
Capacent Gallup hefur staðlað og þróað spurningalista til að kanna ánægju meðal íbúa með þjónustu...meira
Þjónustukannanir
Þjónustukönnununum Capacent Gallup er ætlað að varpa ljósi á upplifun viðskiptavina af þjónustu...meira
Vörumerkjamæling
Árlega framkvæmir Capacent Gallup viðamikla mælingu á ríflega 140 vörumerkjum (logo) á meðal...meira
Markaðsgreining
Upplýsingarnar sem Capacent Markaðsgreining vinnur með byggjast á strikamerkjum og í dag er Capacent...meira
Tracking
Fyrirtækjum býðst að vera með spurningar í vikulegum samfelldum mælingum (tracking) sem lagðar eru...meira
Rýnihópar
Rýnihópar eru eigindleg könnunaraðferð sem byggist á umræðum og verkefnavinnu 6-10 manna hópa um...meira
Markhópagreining
Fyrirtækjum gefst kostur á að fá skýrslur unnar úr Neyslu- og lífstílskönnun Gallup (NLG) þar sem...meira
Neyslu- og lífstílskönnun Gallup
Í Neyslu- og lífsstílskönnun Gallup (NLG) eru netnotendur á aldrinum 16-75 ára spurðir um ríflega...meira
Hulduheimsóknir
Hlutverk hulduheimsókna er því að styðja við rétt vinnubrögð starfsfólks við afgreiðslu og þjónustu...meira
Ímynd fyrirtækja og stofnanna
Capacent Gallup hefur áralanga reynslu af því að mæla ímynd fyrirtækja og stofnana á Íslandi. Í...meira
Auglýsingamarkaðurinn
Auglýsingamarkaðurinn mælir í hverjum mánuði með nákvæmum hætti allar auglýsingar sem birtast í...meira
Ánægjuvogin
Íslenska ánægjuvogin er samstarfsverkefni nokkurra Evrópuþjóða um mælingar á ánægju viðskiptavina...meira
CE 11 Þjónustukönnun
Greining á tengslum viðskiptavina við fyrirtæki (CE11) byggir á ellefu spurningum. Spurningarnar...meira
Conversion kannanir
Í því skyni að meta vörumerkjatryggð og vörumerkjavirði hefur markaðsfólk lengi notað...meira
Djúpviðtöl
Djúpviðtöl eru eigindleg könnunaraðferð sem byggist á samræðum stjórnanda við einn einstakling í...meira