Þjálfun: Stjórnendaþjálfun

Framboð stjórnendaþjálfunar hjá Capacent er mjög víðtækt. Við höfum lagt mikla áherslu á að þróa námsframboð er lýtur að því að greina og þjálfa stjórnendahæfni. Einnig bjóðum við uppá upp á kennslu og þjálfun í afmörkuðum stjórnunaraðferðum.

Stjórnendahlutverkið krefst ákveðinnar færni rétt eins og hvert annað starfstengt hlutverk. Fáir fæðast með þessa færni og því þurfa einstaklingar að þjálfa hana með sér.  Þetta er oft vanrækt og einstaklingum er fengið þetta  hlutverk án nokkurs stuðnings eða þjálfunar. Slíkt getur haft slæmar afleiðingar fyrir vinnustaðinn og einstaklinginn. 
 
Árangur þjálfunar má meta með ýmsum hætti s.s. upplifun og mat þátttakenda af gagnsemi. Til að auka líkur á árangri leggjum við áherslu á að bjóða uppá stöðumat áður en farið er í þjálfun þannig að sníða megi þjálfunina að raunverulegum þörfum og auðveldara sé að meta árangurinn.

Nánari upplýsingar veitir:

Vilmar Pétursson (vilmar.petursson@capacent.is)

Print Bookmark and Share

Stjórnendaþjálfun

  • Að veita endurgjöf
  • Hvatning
  • Markmiðasetning
  • Að dreifa völdum og ábyrgð
  • Að stjórna jafningjum
  • Að stjórna sérfræðingum
  • Að taka á erfiðum starfsmönnum
  • Árangursríkt hópstarf
  • Að vinna úr ágreiningi
  • Streitustjórnun
  • Tímastjórnun

Þjálfun í stjórnunaraðferðum

  • Beiting markþjálfunar (coaching) í stjórnun
  • Breytingastjórnun
  • Aðstæðubundin stjórnun
  • Að stýra gegnum áföll og erfiðleika - Lærðu af þeim sem lifðu af
  • Lóðsun verkefnahópa
  • Samningatækni

Lengra nám: Leiðtogaþróun

  • Stjórnendur framtíðar
  • Árangursrík leiðtogahegðun
  • Árangursstjórnun í skólastarfi