Þjálfun: Mannauðsmál

Capacent bíður uppá víðtæka þjónustu á sviði mannauðsmála á sviði ráðninga, ráðgjafar og fjölbreyttra viðamikla rannsókna.   Þetta gerir okkur kleift að bjóða þjálfun sem byggir á þekkingu okkar á þörf markaðarins.

Þrátt fyrir að menntuðum mannauðsstjórnum hafi fjölgað mjög á undanförnum árum eru enn mjög margir almennir stjórnendur sem þurfa að sinna mannauðsmálum.  Þessir aðilar þurfa hagnýta aðstoð og þjálfun til að sinna því hlutverki.

Námskeið Capacent á sviði mannauðsmála miða að því  að þjálfa stjórnendur  í  hagnýtum aðferðir til að gera þá hæfari að takast á við fjölbreytt viðfangsefni mannauðsmála.  Þetta getur tekið til skipulagningar og áætlanagerðar, öflun umsækjenda og ráðninga, móttaka og þjálfun starfsmanna, frammistöðumat og frammistöðusamtöl, starfsþróun og starfslok.

Árangur þjálfunar má meta með ýmsum hætti s.s. upplifun og mat þátttakenda af gagnsemi. Til að auka líkur á árangri leggjum við áherslu á að bjóða uppá stöðumat áður en farið er í þjálfun þannig að sníða megi þjálfunina að raunverulegum þörfum og auðveldara sé að meta árangurinn.

Nánari upplýsingar veitir:
Vilmar Pétursson (vilmar.petursson@capacent.is)

Print Bookmark and Share

Námskeið á sviði mannauðsmála

  • Frammistöðusamtal
  • Starfsmannasamtal
  • Launaviðtal
  • Viðtalstækni í ráðningum
  • Einelti og önnur vinnustaðavandamál
  • Uppsagnir

Þjálfun í aðferðum

  • Starfsmannaval og móttaka nýliða
  • Frammistöðumat, laun og umbunarkerfi
  • Hvatning, fyrirtækjabragur og starfsánægja
  • Starfsþróun – hæfnisstjórnun
  • Heilsufar og streita
  • Starfslok og krísustjórnun

Lengra nám

  • Hæfnismiðuð mannauðsstjórnun