Þjálfun: Excel

Hæfni starfsmanna til að greina og vinna úr tölulegum upplýsingum er einn af þeim lykilþáttum sem fyrirtæki horfa til í dag. Skilvirk notkun hjálpartóla eins og töflureikna gegnir þar veigamiklu hlutverki við að spara tíma sem fer í slíka vinnu, auka sveigjanleika í framsetningu gagnanna, ásamt því að minnka villuhættu í úrvinnslunni.

Fyrirtæki standa gjarnan frammi fyrir því að hafa í höndunum mikilvæg gögn, en kunnáttu starfsmanna til að vinna frekar með gögnin og greina þau vantar eða er ábótavant. Það eykur hættuna á því að verðmætar upplýsingar fari fram hjá stjórnendum og starfsmönnum og nýtist því ekki við úrbætur á rekstrinum.

Capacent hefur innan sinna raða fjölmarga sérfræðinga sem hafa víðtæka reynslu af vinnu í Excel, greiningu gagna sem og af kennslu. Capacent nálgast Excel þjálfun fyrir viðskiptavini frá sjónarhorni hagnýtra verkefni sem búa starfsmenn undir að vinna sjálfstætt með þau gögn og skjöl sem þeir nota í sínum daglegu störfum. Sömuleiðis gefst starfsmönnum kostur á að mæta með þau skjöl og gögn sem þeir vinna með dags daglega og fá ráðleggingar varðandi þau. 

Þjálfunin fer yfirleitt fram með áherslu á að þátttakendur vinni í Excel, en minni áhersla er á fyrirlestra, nema þess sé sérstaklega óskað. Með þessum hætti geta starfsmenn strax farið að hagnýta sér það sem þeir læra í þjálfuninni og beitt því á raunveruleg verkefni.

Dæmi um lotur
Hér að neðan fer yfirlit yfir nokkrar þeirra lota sem Capacent býður upp á sem tilbúnar einingar. Auðvelt er að blanda lotum saman eða sérsníða lotur þar sem efnisatriði eru veidd upp úr einstökum lotum og sett saman nýja einingu. Listinn hér að neðan er ekki tæmandi.

  • Grunnatriði Excel
  • Helstu föll (e. Functions) í Excel
  • Uppbygging Excel skjala með formúlum
  • Flýtileiðir – Slepptu músinni!
  • Pivot töflur og Pivot gröf í Excel
  • Undirbúningar gagna fyrir pivot vinnslu í Excel
  • Gerð myndrita í Excel
  • Flokkun og greining ganga, síur, röðun
  • Skýrslugerð í Excel (framsetning, prentstillingar, læsileiki, snið talna o.s.frv.)
  • Smíði fjármála og reiknilíkana
  • Vinna með gögn úr gagnagrunnum í Excel
  • Gerð fjölva (e. macros)

Auk lota þar sem áherslan er á fyrirfram ákveðin verkefni þá býður Capacent viðskiptavinum sínum einnig upp á lotur þar sem sérfræðingur Capacent heldur vinnustofu með starfsmönnum. Þar mæta starfsmenn með þau skjöl sem þeir vinna í frá degi til dags og fá aðstoð við að breyta þeim og bæta.

Nánari upplýsingar:
Vilmar Pétursson (vilmar.petursson@capacent.is)
Print Bookmark and Share