Þjálfun


        

 

Megináhersla Capacent við þjálfun er að sníða lausnir að þörfum viðskiptavina.  Við höfum þá trú að slíkt skili betri árangri og sé hagkvæmara en skyndilausnir og einstök námskeið, jafnvel þó þau heiti fallegum nöfnum.  

Til að ná þessu fram er verklag okkar eftirfarandi:

• Við gerum þarfagreiningu áður en farið er af stað.  Þarfagreiningin getur verið með ýmsu móti og mismunandi að umfangi eftir aðstæðum hverju sinni
• Sjálf þjálfunin er ákveðin á forsendum þarfagreiningar og í samvinnu við verkkaupa. Við leggjum áherslu á virkni þátttakenda og að þeir vinni að raunhæfum verkefnum til að viðfangsefnin lærist og yfirfærist á aðstæður þátttakenda.
• Eftirfylgni er nauðsynleg bæði sem aðhald og hvati til að hrinda í framkvæmd því sem unnið hefur verið að í þjálfuninni og eins sem mat á hvernig til hefur tekist.  Eftirfylgnin getur síðan nýst sem fyrsta stig í nýrri greiningu í hringrás stöðugra umbóta.

Hjá Capacent starfa um 100 manns með sérþekkingu á fjölmörgum sviðum.  Þetta ásamt þekkingu og reynslu í fræðslu og þjálfun fullorðinna gefur okkur möguleika að koma á móts við fjölbreyttar þarfir..

Nánari upplýsingar:
 Ásta Bjarnadóttir (asta.bjarnadottir@capacent.is)

Print Bookmark and Share
Þjálfun: Fjármál og rekstur
Þjálfun Capacent á sviði fjármála og rekstrar hefur að stórum hluta miðað að þörfum aðila sem ekki...meira
Þjálfun: Mannauðsmál
Capacent býður uppá víðtæka þjónustu á sviði mannauðsmála á sviði ráðninga, ráðgjafar og...meira
Þjálfun: Persónuleg færni
Í verkfærakistu okkar má finna fjölda námskeiða er lúta að því að efla einstaklinga í leik og...meira
Þjálfun: Stjórnendaþjálfun
Framboð stjórnendaþjálfunar hjá Capacent er mjög víðtækt. meira
Þjálfun: Sölu- og markaðsmál
Capacent hefur í sínum sölu og markaðsnámskeiðum lagt áherslu á að tengja þau við mat, mælingar og...meira