Nálgun Capacent í stefnumótun byggir á skýru og markvissu ferli til að tryggja árangur af þeirri fjárfestingu sem í verkefninu felst, bæði í tíma og kostnaði. Þessu ferli má skipta í þrennt: Greiningu, úrvinnslu og innleiðingu.
Greining
Skilyrði fyrir skynsamlegri stefnumótun og viðeigandi breytingum í kjölfarið er óánægja með ríkjandi ástand. Vönduð greining og sameiginleg sýn stjórnenda á núverandi stöðu er því lykilatriði fyrir góðum árangri af stefnumótun. Af þeim ástæðum er upphaf stefnumótunarferlis Capacent fólgið í að rýna bæði í innra og ytra umhverfi fyrirtækisins. Innri greining lýtur að lykilfærni, tækifærum til úrbóta, menningu og stöðu fyrirtækisins á æviskeiði sínu. Í greiningu ytri þátta er einkum horft til þarfa viðskiptavina, samkeppni og starfsumhverfis auk þess sem metnir eru helstu áhrifaþættir bæði með tilliti til þróunar og líklegra áhrifa. Capacent býr yfir reyndum greiningaraðferðum og aðstöðu til ytri rannsókna til þess að tryggja fagleg vinnubrögð og skýra sýn.
Úrvinnsla/stefnumótun: Hlutverk, framtíðarsýn, stefna, skipulag og aðgerðir
Að því gefnu að skýrar niðurstöður liggi fyrir úr greiningu, er við það miðað að skýrir stefnuvalkostir mótist með auðveldum hætti. Hér er farið yfir þá valmöguleika sem til greina koma fyrir fyrirtækið, þeim stillt upp og mat lagt á kosti og galla hvers og eins. Spurningunni „Hver er grundvöllurinn fyrir tilveru fyrirtækisins?“ er velt upp á þessu stigi málsins og hlutverk þess skilgreint. Jafnframt er umfang starfseminnar skilgreint, eins og kjarni vöru- og þjónustuframboðs, ásamt þeim markaðssvæðum eða markhópum sem ákveðið er að beina kröftum að. Þá eru skilgreind þau grunngildi sem starfa á eftir. Að svo búnu er ákveðið hvert fyrirtækið á að þróast til framtíðar, þar sem m.a. er glímt við nánari skilgreiningar á þeim mörkuðum sem á að þjóna, áherslur í þjónustu og rekstrarmál af ýmsu tagi. Úrvinnslunni lýkur með því að svara spurningunni „Hvernig störfum við út frá þeirri framtíðarsýn sem mörkuð hefur verið?“. Þannig er stefnan skilgreind á grunni þess sem á undan er gengið, einstök markmið tilgreind og aðgerðaáætlun unnin.
Innleiðing
Þriðja og ekki síst mikilvægasta skrefið í stefnumótunarferlinu er innleiðing stefnunnar. Ítarleg innleiðingaráætlun er gerð um þær aðgerðir sem framkvæma þarf, þannig að unnt sé að ná þeirri stefnu og framtíðarsýn sem mótuð var í öðrum hluta ferilsins. Þá er aðstoðað við miðlun stefnunnar með umræðuferli í allri starfseminni svo tryggt sé að starfsmenn skilji betur áform fyrirtækisins og áhrif stefnunnar á störf þeirra og verkefni. Unnið er með áðurnefnd grunngildi sem skilgreind hafa verið auk þess sem aðstoðað er við þjálfun og undirbúning stjórnenda vegna breytinga. Almennt er við það miðað að í fyrirtækinu sitji eftir þekking og aðferðafræði til þess að fylgja eftir breytingum og festa í sessi sveigjanleika og stöðuga endurnýjun í menningu fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar:
Þórður Sverrisson (thordur.sverrisson@capacent.is)
Arnar Jónsson (arnar.jonsson@capacent.is)