Tölvukerfi gegna æ mikilvægara hlutverki í starfi fyrirtækja. Nær öll gögn og upplýsingar eru geymdar í gagnagrunnum og stór hluti samskipta, jafnt innan fyrirtækisins sem út á við, á sér stað í gegnum tölvupóst og margvísleg samskiptaforrit. Sé ekki hugað að öryggismálum eru fyrirtæki berskjölduð fyrir margvíslegum hættum hvort sem er tölvuveirum er geta skemmt gögn eða tölvuþrjótum er reyna að komast yfir viðkvæmar upplýsingar.
Capacent býður fyrirtækjum upp á margvíslega þjónustu á sviði öryggismála og hjá okkur starfa sérfræðinga með mikla reynslu á þessu sviði. Meðal þess sem við bjóðum upp á er:
- innri úttektir stjórnkerfis
- öryggis- og veikleikaprófanir
- áhættugreining
- neyðaráætlanir/afritunaráætlanir
- breytingastjórnun
- mótun öryggisstefnu
- starfsmannahandbók
- starfsmannaþjálfun (employee awareness training)
Nánari upplýsingar:
Ólafur Róbert Rafnsson (olafur.rafnsson@capacent.is)
Kynntu þér áhættumatslausn Capacent