Vinnustaðargreining

Vinnustaðargreining, Gallup Workplace Audit (GWA), er greiningar- og rannsóknartæki sem greinir innra heilbrigði fyrirtækja og möguleika til að hámarka framleiðni, ánægju og þjónustuvilja starfsmanna. Vinnustaðargreiningin byggist á áratuga rannsóknum Gallup í Bandaríkjunum á viðhorfum starfsfólks tengslum þeirra við fjóra árangursþætti: hagnað, framleiðni, starfsmannaveltu, og ánægju viðskiptavina.

Gagnabanki Capacent Gallup
Fyrirtækja- og starfsmannarannsóknir Capacent Gallup hafa framkvæmt vinnustaðargreiningu fyrir fjölmörg af stærstu fyrirtækjum landsins og þannig byggt upp gagnabanka af svörum um 70.000 starfsmanna íslenskra fyrirtækja úr tæplega 200 vinnustaðagreiningum um ýmsa þætti í starfsemi fyrirtækjanna. Eftir að hafa framkvæmt vinnustaðargreiningu geta fyrirtæki því borið sig saman við önnur íslensk fyrirtæki og séð hvernig þau koma út í samanburðinum t.d. hvað varðar stjórnun, starfsánægju, starfsanda, og endurgjöf.  Samanburðurinn veitir mikilvægar upplýsingar um tækifæri og áskoranir í innra umhverfinu.  

Af hverju vinnustaðargreiningu?
Margt í innra umhverfi og skipulagi fyrirtækja er ráðandi um frammistöðu starfsfólks. Ánægja, hollusta, streita, starfsandi og stjórnun—tengjast t.a.m. fjarvistum starfsfólks, starfsmannaveltu og liðshegðun (OCB).  Ánægðari starfsmaður er líklegri til að skila betra starfi innan fyrirtækisins og t.a.m. veita betri þjónustu sem skilar sér í tryggari og ánægðari viðskiptavinum. Með því að sjá hvar fyrirtækið stendur og hver viðhorf starfsmanna eru gagnvart hinum ýmsu þáttum er hægt að bregðast við áskorunum á markvissan hátt.

Markmiðin með vinnustaðargreiningu og aðgerðum í kjölfar hennar eiga að skila sér í:
  • ánægðari starfsmönnum
  • ánægðari viðskiptavinum
  • ánægðari hluthöfum

Vinnustaðargreining opnar samskiptaleiðir innan fyrirtækisins. Upplýsingarnar sem unnið er úr koma frá þeim sem best til þekkja, þ.e. starfsmönnum fyrirtækisins, þær auðvelda ákvarðanatöku, skapa umræðu og hvetja til dáða.

Nánar tiltekið veitir vinnustaðargreining:
  • Greiningu á styrkleikum og áskorunum fyrirtækisins (svo sem hollustu og tryggð, vinnuálagi og streitu, samhæfingu starfs og einkalífs, starfsanda og samvinnu, stjórnun, hvatningu og endurgjöf, umbun og launakjörum, umboði til athafna, starfsþróun, þjónustulund, frumkvæði, ímynd o.fl.)
  • Forgangsröðun verkefna sem hafa mest áhrif á starfsánægju og framleiðni starfsfólks
  • Grundvöll fyrir breytingum
  • Samanburð við íslensk fyrirtæki

Vinnustaðargreining getur veitt fyrirtækjum svör við spurningum á borð við: Væri hægt að auka hollustu starfsfólks?  Á fyrirtækið á hættu að missa lykilstarfsmenn á næstunni?  Hvaða þættir hafa mest áhrif á hollustu og tryggð starfsmanna? Hvernig eru samskipti starfsmanna milli deilda?  Mætti bæta stjórnunarhætti? Hver er afstaða starfsfólksins til gæðamála? Hver er þekking og afstaða starfsfólksins til þjónustu?  Hver er þjálfunarþörf starfsfólksins?

Á vinnufundi með stjórnendum er farið yfir áskoranir og styrkleika í innra umhverfi fyrirtækisins þar sem niðurstöðurnar eru ræddar og ýmsum möguleikum velt upp sem til greina koma fyrir fyrirtækið í framhaldinu.
Mikilvægt er síðan að stjórnendur setji sér aðgerðaráætlun með raunhæfum markmiðum, setji tímaramma og ábyrgðarmenn og gangi eftir því að breytingar sem þeir ákveði séu innleiddar. Endurteknar mælingar veita síðan upplýsingar um árangur af íhlutunum og breytingum.
Við endurteknar mælingar opnast einnig möguleiki á að skoða breytingar í tíma og fá svör við spurningum á borð við: Hvernig hefur þjónustulund eða frumkvæði breyst? Bar þjálfun starfsmanna tilætlaðan árangur? Skiluðu breytingar á skipulagi sér í bættum samskiptum?

TRI*M aðferðafræðin--flokkun starfsmanna og alþjóðlegur samanburður

TRI*M aðferðafræðin er nýjung í starfsmannarannsóknum hjá Capacent. Þetta er aðferðafræði sem þróuð hefur verið af Gallup fyrirtækjunum og gefur upplýsingar um hollustu starfsmanna og veitir alþjóðlegan samanburð bæði almennt og við ákveðnar atvinnugreinar. 

Aðferðafræðin skiptir starfsmönnum í fjóra hópa eftir dýpt og eðli hollustu þeirra út frá fimm spurningum. Starfsmönnum er skipt í "Talsmenn," "Ég á heima hér," "Fjarlægir," og "Gagnrýnendur."

Einkenni "Talsmanna" eru að þeir samsama sig fyrirtækinu og markmiðum þess, eru tryggir fyrirtækinu og trúa á framtíðarsýn og samkeppnishæfni þess . Þeir eru kraftmiklir, hafa mikinn vilja til samvinnu og hafa jákvæð áhrif á vinnufélaga sína. Einkenni "Ég á heima hér" hópsins er há starfánægja. Þeir leggja sig fram í vinnunni, án þess að telja að umhverfið sé sérlega hvetjandi. Þeir eru kjölfesta fyrir fyrirtækið og starfsmannahópinn og nærast að hluta til á öryggi og þörf fyrir leiðsögn og stýringu. Einkenni "Fjarlægra" er óánægja. Þeir aðgreina sig frá fyrirtækinu, upplifa letjandi starfsumhverfi og hafa neikvæð áhrif á aðra. Kraftar þessa hóps eru vannýttir. Einkenni "Gagnrýnenda" er gagnrýnin afstaða og því er erfitt að stjórna þeim. Þeir hafa samt mikla trú á samkeppnishæfni og styrk fyrirtækisins og afstaða þeirra getur verið hvati til breytinga. Þeir hafa þó einkum áhuga á að efla sinn eigin persónulega starfsframa og eru tilbúnir að skipta um starf ef tækifæri bjóðast.

Upplýsingar eru veittar um hlutfall hvers hóps í fyrirtækinu í heild og sviðum innan fyrirtækisins. Einnig er mögulegt að veita samanburð við atvinnugreinar úr erlendum gagnabanka.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is


Print Bookmark and Share