Umsagnir

Björn Pétursson, skólastjóri Melaskóla

Skólaárið 2007-2008 var unnin heilmikil stefnumótunarvinna í Melaskóla til að marka stefnu til ársins 2012. Leitað var til Capacent til að leiða þá vinnu og var Fjóla María Ágústsdóttir valin til verksins af þeirra hálfu. Hún kom á fundi starfsmanna skólans og stýrði umræðum, útfærslu þeirra og samantekt. Hún leiddi vinnuna af mikilli röggsemi og kom með góðar ábendingar.

Í lokin var myndaður hópur í skólanum sem samanstóð að stjórnendum skólans, fulltrúum kennara, fulltrúum starfsmanna, fulltrúum foreldra og nemenda. Undir handleiðslu Capacent var stefnan endanlega mótuð og prentuð til dreifi ngar.Samvinna skólans og Capacenthefur verið mjög farsæl og hefur Fjóla unnið af mikilli fagmennsku.
Print Bookmark and Share