Umsagnir

Umferðarstofa

Umferðastofa er dæmi um stofnun sem náð hefur miklum árangri með innleiðingu stefnumiðaðs árangursmats með aðstoð Capacent. Hún var valin Ríkisstofnun til fyrirmyndar árið 2006 og hefur stofnunin náð markmiðum sínum með skipulögðum og mælanlegum hætti.

Eins og segir í umsögn matsnefndar sem fór í gegnum allar tilnefningar:
“…Hluti af framtíðarsýninni var að árið 2006 yrði Umferðarstofa talin fyrirmyndarstofnun í ríkisrekstri sem nú hefur ræst. Mikill hugur var í starfólki sem tók allt þátt í útfærslu stefnunnar og umræðu um markmiðssetningu í anda stefnumiðaðs árangursmats sem reynst hefur öflugt tæki til að koma á breytingum…

Mælanlegur árangur hefur náðst í umferðaröryggismálum, sem stofnunin vinnur að ásamt fjölmörgum öðrum og má í því sambandi geta þess að árið 2002 létust í umferðinni eða slösuðust alvarlega 200 manns en árið 2004 var fjöldinn undir 150, þrátt fyrir umtalsverða fjölgun ökutækja.”

Print Bookmark and Share