Þjónustukannanir

Þjónustukönnununum Capacent Gallup er ætlað að varpa ljósi á upplifun viðskiptavina af þjónustu fyrirtækis eða stofnunar. Slíkar kannanir eru góð leið til að fá upplýsingar frá viðskiptavinum og mæla virkni gæðastjórnunar í fyrirtækjum.

Þjónustukannanir Capacent Gallup byggja að hluta til á stöðluðum spurningum og gefur það fyrirtækjum kost á samanburði við frammistöðu annarra fyrirtækja sem mælt hafa þjónustu í samstarfi við Capacent Gallup undanfarin ár.

Í niðurstöðum eru áhrifaþættir settir fram á þann hátt að auðvelt er að ákveða aðgerðir og forgangsraða þeim.  Skoðað er hvaða þjónustuþættir hafa mest áhrif á heildaránægju viðskiptavina með þjónustu og hver frammistaða fyrirtækisins á þeim er. Með upplýsingar um frammistöðu fyrirtækisins á mismunandi þjónustuþáttum, ásamt vitneskju um áhrif mismunandi þjónustuþátta á ánægju viðskiptavina, er fyrirtækið betur í stakk búið en áður til að forgangsraða aðgerðum og nýta fjármuni á hagkvæman hátt.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is

Print Bookmark and Share