Sveitarfélagakannanir

Capacent Gallup hefur staðlað og þróað spurningalista til að kanna ánægju meðal íbúa með þjónustu síns bæjar- eða sveitarfélags. Rannsóknin er öflugt tæki fyrir stjórnarmenn bæjar og sveitarfélaga til að greina og fylgjast með afstöðu og ánægju íbúa. Niðurstöður geta ekki síst nýst við forgangsröðun verkefna og stefnumótun.

Gerður samanburður á niðurstöðum bæjar- eða sveitarfélagsins við heildarniðurstöður annarra bæjar- eða sveitarfélaga sem hafa kannað þjónustu sinna íbúa.

Um er að ræða árangursríka leið til að fá upplýsingar um afstöðu íbúa og hvar veikleikar og styrkleikar liggja í þjónustu og starfi bæjar- eða sveitarfélagsins. Með því að leggja könnunina fyrir á 2-4 ára fresti er t.d. hægt að greina hvort ánægja íbúa sé að aukast eða minnka bæði almennt og hvað varðar einstaka þjónustuþætti.

Með samanburði við önnur sambærileg bæjar- eða sveitarfélög verða til viðmið um og grundvöllur fyrir raunhæfa markmiðasetningu sem byggist á traustum grunni rannsókna.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is
Print Bookmark and Share