Breytingar í efnahagsmálum og samfélaginu öllu kalla á viðbrögð stjórnenda og nýja nálgun. Þeir þurfa m.a. að átta sig á því hvernig best sé að halda eða styrkja stöðu þeirra starfseininga sem þeir bera ábyrgð á, miðað við breyttar aðstæður.
Viðeigandi viðbrögð stjórnenda felast ekki síst í að styrkja grundvöll starfseminnar með mótun nýrrar stefnu eða endurskoðun á gildandi stefnu. Ráðgjafar Capacent hafa mikla þekkingu og reynslu af stefnumótunarvinnu fyrir ólík fyrirtæki og stofnanir og beita viðurkenndum og reyndum stefnumótunaraðferðum. Meta þarf hvaða lausn á best við hverju sinni en meðal þeirra stefnumótunarlausna sem Capacent býður upp á eru:
- Mótun á heildarstefnu fyrirtækja (hlutverk, framtíðarsýn, gildi, áherslur)
- Gildagrunduð stefnumótun
- Skipulagning fyrirtækis út frá árangurseiningum og ábyrgð
- Árangursstjórnun
- Stefnuáætlanagerð
Stefnumótun er öllum eiginleg og í mörgum tilvikum ómeðvituð. Fyrirtæki eru sífellt að breyta og bregðast við aðstæðum. Slíkar breytingar taka hins vegar ekki mið af heildarmyndinni og því versnar virkni fyrirtækjanna smám saman með tímanum ef staðan er ekki endurmetin í heild reglulega. Stefna samhæfir ólíka þætti í starfsemi fyrirtækja og stofnana, hjálpar stjórnendum að velja úr fjölda tækifæra, auðveldar ákvarðanatökur og leiðir til þess að betri ákvarðanir verði teknar með því að horft er til allra átta. Síðast en ekki síst stuðlar hún að því að fyrirtæki og stofnanir skilgreini með skýrum hætti sérstöðu sína og virðisauka bæði fyrir sig og viðskiptavini sína og beini markvisst kröftum að því sem skilar mestum árangri til lengri tíma.
Nánari upplýsingar veita:
Þórður Sverrisson (thordur.sverrisson@capacent.is)
Ása Karin Hólm Bjarnadóttir (asa.karin.holm@capacent.is)
Arnar Jónsson (arnar.jonsson@capacent.is)