Starfslýsingar

Starfslýsingar eru mikilvæg verkfæri sem gagnast stjórnendum og starfsmönnum á ýmsa vegu. Þannig er faglega unnin starfslýsing öflugt stjórntæki þar sem dregin er fram umgjörð um starfið ásamt megin kröfum um hlutverk, ábyrgð, hæfni og megin verkefni starfsmanns.  Með þeim hætti veit starfsmaður til hvers er ætlast af honum í starfi. Starfslýsing er mikilvægur grunnur til þess að hægt sé að meta frammistöðu starfsmannsins.   Starfslýsing er einnig öflugt samskiptatæki þar sem starfsmenn geta betur áttað sig á hvar ábyrgð þeirra liggur og hvar ábyrgð annarra hefst. Þá gegnir vel unnin starfslýsing því hlutverki að staðsetja störfin innan skipulags fyrirtækisins, sem tryggir virkni skipulags og markvissa boðmiðlun.

Ráðgjafar Capacent hafa mikla reynslu og þekkingu á mannauðsstefnu og mannauðsferlum.

Nánari upplýsingar veita:
Ása Karin Hólm Bjarnadóttir
Print Bookmark and Share