Að halda í reynslu og þekkingu starfsmanna er lykilatriði fyrir öll fyrirtæki og í raun forsenda þess að þau geti náð samkeppnisyfirburðum. Mikil starfsmannavelta getur auk þess kostað fyrirtæki ómælda fjármuni og tíma.
Þar sem mikið er fjárfest í þjálfun og menntun starfsfólks er mikilvægt að reyna að komast að orsökum hárrar starfsmannaveltu.
Þrátt fyrir að stjórnendur séu almennt meðvitaðir um þessa staðreynd er starfsmannavelta vandamál hjá mörgum fyrirtækjum. Fyrirtæki sem vita af hverju fólk hættir störfum hjá þeim geta brugðist við á markvissan hátt.
Ástæður uppsagna starfsfólks geta verið af margvíslegum toga, svo sem óánægja með starfið, starfsaðstöðu, vinnutíma, laun, samstarfsmenn og yfirmenn.
Neikvæð áhrif mikillar starfsmannaveltu eru margháttuð á starfssemi fyrirtækisins. Nýtt eða illa þjálfað starfsfólk getur tekið rangar ákvarðanir og þekkir ekki verkferli nægjanlega vel. Starfsmannavelta hefur þannig neikvæð áhrif á þjónustu og framleiðni. Þegar lykilstarfsmenn hætta hefur starfsmannavelta líka áhrif á starfsanda og samstarfsgetu. Álag á þá starfsmenn sem eftir eru í fyrirtækinu getur einnig aukist og raunar hefur verið sýnt fram á að starfsmannavelta getur valdið enn meiri starfsmannveltu.
Ein mikilvægustu rök fyrir því að takast á við mikla starfsmannaveltu er þó sá beini kostnaður sem af henni hlýst, þ.e. kostnaður vegna auglýsinga, viðtala, þjálfunar og fleiri þátta tengda ráðningarferlinu. Skv. kostnaðarútreikningum sem oft eru notaðar við mat á kostaði við starfsmannaveltu má áætla að kostnaður fyrirtækis við að missa starfsmann og fá nýjan í hans stað nemi á bilinu einföldum til tvöföldum árslaunum hans. Ennþá dýrara er að missa lykilstarfsmenn og stjórnendur úr fyrirtækjum.
Starfsmenn sem fara frá fyrirtækinu geta veitt stjórnendum mikilvægar upplýsingar um áskoranir í innra umhverfi fyrirtækisins. Með starfslokagreiningu fær fyrirtækið upplýsingar um ástæður starfsloka starfsmanna sinna, t.d. í hvaða mæli starfsfólk fer frá fyrirtækinu vegna óánægju sinnar með innra starfsumhverfi fyrirtækisins, vegna markaðsaðstæðna og tilboða frá samkeppnisaðilum og vegna persónulegra ástæðna.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is