Capacent er endursöluaðili fyrir SPSS á Íslandi. SPSS er útbreiddasti tölfræðihugbúnaður á Íslandi og hefur verið það undanfarna tvo áratugi. Í dag er um tvenns konar hugbúnað að velja frá SPSS. Annars vegar er það SPSS Statistics, sem er sú útgáfa sem flestir þekkja, og kennt er á m.a. í heilbrigðisvísinda- og félagsvísindasviði við Háskóla Íslands, sem og í Háskólanum í Reykjavík í sálfræði og viðskiptafræði. Hins vegar er SPSS Modeler í boði, og er það öflugt tól sem ætlað er til gagnavinnslu (e. datamining) og líkanasmíði úr stærri gagnagrunnum.
- Meira um SPSS Statistics
- Meira um SPSS Modeler
Capacent hefur notað SPSS við úrvinnslu markaðsrannsókna og greininga á sviði analytics um árabil, og býr yfir yfirgripsmikilli þekking á notkun og notkunarmöguleikum á SPSS. Capacent býður upp á þjálfun í SPSS og ráðgjöf um notkun.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Valgeirsson. (halldor.valgeirsson@capacent.is)
Sími 896-7164