Smíði rekstrar- og fjármálalíkana

Gerð fjármálalíkana fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, allt frá einföldum arðsemisútreikningum til flókinna deildaskiptra sjóðsflæðislíkana. Unnið er samkvæmt bestu aðferðum við hugbúnaðargerð og mögulegt er að fá í hendur vottað líkan sem gerir ákvarðanatöku fjármálastjórans markvissari.

Fyrirtæki standa oft frammi fyrir flóknum málum sem þarf að teikna upp og meta út frá mismunandi sjónarhornum. Hvort sem um er að ræða flókinn rekstur, arðsemismat, greiðsluflæði í mörgum gjaldmiðlum eða flókin orsakatengsl þá aðstoða ráðgjafar Capacent við að setja vandamálið upp í líkan í Excel eða öðrum hugbúnaði ef vill.

Uppsetning vandamála í líkön hjálpar til við að velta upp ýmsum sviðsmyndum (e. scenarios) þar sem skoða má orsakasamhengi ákvarðanna og taka tillit til breytinga á mörgum forsendum í einu. Áhættumat verður markvissara og lykilbreytur í rekstrinum eru greindar.

Hvort sem um er að ræða flókið eða einfalt verkefni sem lítur að rekstri, fjármálum eða einhverju öðru,  munu ráðgjafar Capacent hjálpa til við að fanga verkefnið og stilla því upp á gagnsæjan hátt í því umhverfi sem hentar. Microsoft Excel er gjarnan notað við slíka líkanasmíð en einnig má nota annan hugbúnað ef þörf krefur.

Nánari upplýsingar:
Hallbjörn Ægir Björnsson (hallbjorn.bjornsson@capacent.is)
Print Bookmark and Share