Rýnihópar

Rýnihópar eru eigindleg könnunaraðferð sem byggist á umræðum og verkefnavinnu 6-10 manna hópa um tiltekið viðfangsefni. Algengt er að notaðir séu 3 til 5 hópar í hverri rannsókn.

Með þessari rannsóknaraðferð er kafað djúpt í málefnin og reynt að komast að ýmsu sem einstaklingar eiga ekki auðvelt með að útskýra á einfaldan og fljótlegan hátt.

Markmið með rýnihópum er að finna rauðan þráð í umræðum sem:
  • Gefur vísbendingu um stöðu og þróun mála.
  • Veitir innsýn í huga neytenda og eykur skilning.
  • Gerir markaðsfólki kleift að setja sig í spor neytenda.

Umræður og niðurstöður rýnihópa gefa hugmyndir og veita innblástur, m.a. við þróun og endurbætur á vöru, þjónustu og í auglýsinga- og kynningarmálum. Rýnihópar eru góð leið til að nálgast viðhorf fólks til ákveðinna málefna eins og til dæmis lýðræðis, kosninga- og stéttarfélagsmála og ef dýpka þarf skilning á ímynd fyrirtækja eða stofnana.

Rýnihópar eru einnig oft nýttir til að ákveða næstu skref í rannsóknum og eru þá hugsaðir sem forkönnun. Þannig geta magnmælingar í framhaldinu orðið markvissari. Einnig vakna oft upp spurningar í framhaldi af magnmælingu og eru þá rýnihópar góð leið til að kafa dýpra í niðurstöðurnar. Þá hafa rýnhópar reynst sérstaklega vel þegar skoða á ímynd og stöðu vörumerkja.
Sérstaða Capacent þegar kemur að framkvæmd rýnihópa er ótvíræð:

Eigindlegir sérfræðingar Capacent Gallup hafa mikla þjálfun, menntun og reynslu að baki og hafa samanlagt stjórnað hundruðum hópa. Boðun í hópana skiptir miklu máli en sérþjálfaðir spyrlar í úthringiveri Capacent sjá um að boða fólk.

Capacent hefur yfir að ráða vandaðri rýnihópaaðstöðu þar sem viðskiptavinurinn getur fylgst með umræðum hópanna á sjónvarpsskjá þegar þær eiga sér stað og er það mikilvægur þáttur í ferli rannsóknarinnar.

Við úrvinnslu er notast við sérstakt forrit til að flokka svör miðað við þau þemu sem koma fram í umræðunum. Þetta eykur áreiðanleika við úrvinnslu og tryggir vönduð vinnubrögð.

Uppbygging umræðna fer eftir markmiði rannsóknarinnar hverju sinni. 

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is
Print Bookmark and Share