Af hverju er mikilvægara nú en áður að styrkja liðsheildina ?
Flatari skipurit í fyrirtækjum kalla á meiri og skilvirkari innri samskipti en áður. Þörfin er að bregðast alltaf hraðar við aðstæðum á markaði. Stöðugar innri breytingar í fyrirtækjunum þýða að skipulagið er flóknara en um leið sveigjanlegra en áður og ákvarðanir eru teknar í meira samráði en fyrr.
Til að aðlagast því þarf að auka samskipti, samvinnu og skapa andrúmsloft þar sem viðurkennt er að einstaklingarnir geti leitað hver til annars.
Liðsheildarlausnir okkar eru sniðnar að þörfum hvers viðskiptavinar. Við byrjum á að greina hvar verkurinn er, þá kemur tillaga að lausn og síðan farið í innleiðingu.
Aðferðarfræðin okkar byggð á aðferðafræðinni: Lært af reynslunni (Experiential Learning).
Skapaðar eru aðstæður og verkefni með leikjum og þrautum sem þátttakendur sameinast um að leysa. Við það verður til reynsla sem þátttakendur rýna í með leiðbeinandanum og sameiginlega er reynt að heimfæra hana inn í vinnuumhverfi viðkomandi. Megin ástæður þess að aðferðafræðin virkar er að jafnræði skapast meðal þátttakenda, tengsl styrkjast mjög hratt og einstaklingarnir eiga gott með að sýna sitt rétta andlit. Þetta er áhrifaríkt lærdómsumhverfi sem ýtir undir traust, ánægju og gleði. Leitað er í smiðjur ýmissa sem skoðað hafa hvernig góð lið hafa náð árangri, Project Adventure, Suzan Willis, Patric Lencioni, Bruce Tuckman, Gallup, Ernst Shackleton o.fl.
Til að meta árangur af liðsheildarvinnu þarf að nota bæði huglæga og hlutlæga mælikvarða. Ein leið er að spyrja þátttakendur um hvernig upplifunin hafi verið og önnur að beita tækjum eins og liðsheildarkönnun. Oft er hægt að finna mikinn mun á andrúmslofti vinnustaða eftir liðsheildarvinnu. Því er gott og hressandi að líta um öxl og velta fyrir sér hvort eitthvað hafi breyst og hvort hægt sé að kalla það árangur.
Vinnustofur
Fyrirlestrar
Nánari upplýsingar:
Sigurjón Þórðarson (sigurjon.thordarson@capacent.is)

- Minni vinnustofur frá tveimur - sex klst.
- Lengri vinnustofur heill dagur til þriggja.
- Fræðilegt innlegg í bland við verkefni og lykilþrautir úr smiðju Project Adventure.
- Shackleton vinnustofa frá þremur klst. kraftmikil og myndræn vinnustofa byggð á reynslu pólsfarans.
Fyrirlestrar
- Viðhorf.
- Sterk liðsheild.
- 4x4 Leiðtoginn í þungu færi.
- Fimm hindranir liða Patric Lencioni.