Markaðshringurinn

Markaðshringurinn er greiningartæki sem hjálpar fyrirtækjum við að átta sig á hvort að samhljómur er í stefnu, skipulagi og stjórnun og einstökum verkefnum í heildstæðri markaðsvinnu fyrirtækisins.

Þörfin, og þar með vandinn, liggur í þeirri stöðu að fyrirtækið veit ekki hvort að stefna þess, skipulag, stjórnun og nálgun við markaðsvinnu sé skynsamleg og sé að skapa fyrirtækinu sterka samkeppnisstöðu.

Um er að ræða kerfisbundna greiningu á stöðu út frá skýrri uppbyggingu Markaðshringsins, þar sem greiningin byggir á djúpviðtölum, hópfundum, skoðun gagna og vinnustofum. Útfærsla aðgerða er unnin með starfsfólki fyrirtækis, bæði stýrihópi og einstökum verkefnahópum. Endar í ítarlegri aðgerðaáætlun og eftirfylgni og eftirlit með árangri.

Markaðshringurinn er það verkfæri sem lausnin byggir á. Við skoðun og mat á einstökum þrepum hringsins er þar fyrir utan beitt öðrum verkfærum sem henta hverju þrepi.



  • Kerfisbundin yfirferð dregur fram greiningu á stöðu fyrirtækisins á sviði stefnumótunar, stjórnunar og markaðsmála í víðu samhengi.
  • Skilgreinir þau svið þar sem fyrirtækið er að vinna vel og þau svið þar sem umbóta er þörf.
  • Auðveldar fyrirtækjum að forgangsraða þeim þáttum sem bæta þarf.
  • Leggur fram hugmyndir og tillögur um aðgerðir til að taka á úrbótatækifærum.
  • Með endurtekinni mælingu má svo fylgjast með samfelldum endurbótum í fyrirtækjum í átt að vera í fremstu röð.

Nánari upplýsingar veita:

Þórður Sverrisson (thordur.sverrisson@capacent.is)
Ása Karin Hólm Bjarnadóttir (asa.karin.holm.bjarnadottir@capacent.is)
Print Bookmark and Share
„Markaðsmál eru það mikil grundvallarmál, að ekki er hægt að líta á þau sem aðgreindan verkþátt. Þau tengjast allri starfseminni eins og hún endurspeglast að lokum í augum viðskiptavinarins. Árangur í viðskiptum er ekki ákveðinn af framleiðanda vöru og þjónustu, heldur af viðskiptavininum.“

Peter Drucker