Markaðsgreining

Markaðsgreining ehf. var stofnuð í október 1997 í þeim tilgangi að koma á laggirnar sölutölugrunni um matvörumarkaðinn. Árið 2001 varð Markaðsgreining hluti af IMG sem síðar varð Capacent. Upplýsingarnar sem Capacent Markaðsgreining vinnur með byggjast á strikamerkjum og í dag er Capacent Markaðsgreining að fá sölutölur frá um 95% verslana á dagvörumarkaðnum.

Capacent Markaðsgreining vinnur þessar upplýsingar mjög náið með Nielsen sem er leiðandifyrirtæki á sviði markaðsupplýsinga í heiminum. Upplýsingarnar eru greindar niður í vöruflokka þannig að kaffi er einn vöruflokkur, gos annar o.s.frv. Í dag er unnið með um 60 vöruflokka.

Um er að ræða vikulegar upplýsingar og er hægt að skoða þær út frá margvíslegum breytum og má þar helst nefna markaðsstærð og þróun, markaðshlutdeild í verðmæti og magni, verð og  dreifingu.

Nielsen
Nielsen er eitt stærsta og virtasta rannsóknarfyrirtæki í heimi. Fyrirtækið var stofnað í Bandaríkjunum árið 1923 og starfar í dag í yfir 100 löndum með yfir 18.000 starfsmenn.

Nielsen fyrirtækin á Norðurlöndunum eiga mjög gott og náið samstarf varðandi skipti á upplýsingum, ráðstefnur og fleira. Fyrirtækið er leiðandi á sviði markaðsupplýsinga s.s.  skoðana og markaðskannana, netkannana, fjölmiðlamælinga og hefur sérhæft sig í strikamerkjaupplýsingum (Scannerdata).

Þjónusta Capacent Markaðsgreiningar
Sölutölur frá matvöruverslunum: Vikulegar upplýsingar frá um 95% af markaðnum.  Upplýsingarnar eru flokkaðar niður í rúmlega 60 vöruflokka og gefa notendum innsýn um  þróun og stærð markaðarins, markaðshlutdeild, dreifingu, verð o.fl.

Sölutölur frá olíufélögunum: Eru byggðar upp með sama hætti og í matvörugeiranum.

Sölutölur frá ÁTVR: Vikulegar upplýsingar frá ÁTVR. Upplýsingarnar eru flokkaðar niður í 4  vöruflokka.

Spaceman hilluframsetningarforritið
Gengur í stuttu máli út á að hámarka framlegð á hvern fermetra í versluninni. Byrjaði í  matvörugeiranum og hefur verið að ryðja sér til rúms í fleiri geirum eins og apótekum,  bensínstöðvum, byggingavöruverslunum o.fl.

Spaceman þjónusta
Capacent Markaðsgreining tekur að sér að vinna Spaceman verkefni fyrir viðskiptavini sína. Þá er tekinn fyrir ákveðinn vöruflokkur, hann teiknaður upp, settar inn upplýsingar um veltu,  markaðshlutdeild, framlegð o.fl. Út frá þessum forsendum er síðan teiknuð upp sú  vöruframsetning sem skilar mestri framlegð.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is
Print Bookmark and Share