Hulduheimsóknir

Hlutverk hulduheimsókna er því að styðja við rétt vinnubrögð starfsfólks við afgreiðslu og þjónustu.  Hulduheimsóknir eru skilvirk leið til að safna gögnum um þjónustu en gagnasöfnun og endurgjöf í framhaldinu er nauðsynlegur hluti áherslu á rétt vinnubrögð.

Með þessum hætti er hægt að veita endurgjöf um frammistöðu starfsfólks og stuðla þannig að bættri þjónustu.

Í hulduheimsóknum fara sérþjálfaðir aðilar í heimsókn til viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar í hlutverki viðskiptavinar.

Lögð er áhersla á að mælingar séu ekki eingöngu ætlaðar til upplýsingasöfnunar heldur að þær skili sér í bættri frammistöðu starfsfólks. Afar mikilvægt er að starfsfólk viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar sé þjálfað til að það geti leyst störf sín af hendi í samræmi við þjónustustaðal, sé upplýst um niðurstöður hverrar mælingar og aðstoðað við að breyta hegðun sinni á grundvelli þeirra.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is
Print Bookmark and Share