Eftirlit og utanumhald hugbúnaðarleyfa er flókið ferli. Með vel skilgreindu verklagi er hægt að auka öryggi og hafa betri stjórn á notkun, dreifingu og uppfærslum hugbúnaðar.
Ef þú getur ekki svarað spurningunum hér að neðan staðfastlega játandi þá eru líkur á því eitthvað sé ábótavant í þínu umhverfi. Að öllum líkindum myndi fyrirtækið ekki standast eftirlitsskoðun framleiðanda.
Lykilspurningar
-
Er ljóst hversu margar útstöðvar, fartölvur, lófatölvur, og netþjónar eru í notkun?
-
Er sannarlega til staðar notkunarréttur á öllum hugbúnaði sem settur hefur verið upp?
-
Eru verkferlar um hvernig haga skuli innkaupum og umsýslu á hugbúnaði þekktir?
-
Er hægt að nálgast alla leyfiskóða á einfaldan máta fyrir þann hugbúnað sem búið er að kaupa eða leigja
Capacent getur
- Aðstoðað við að meta stöðuna með óháðri úttekt á notkun hugbúnaðar
- Hjálpað við að ná fram hagræðingu á sviði hugbúnaðarleyfismála
- Aðstoðað við tilboðsgerð og við rýni á verðtilboðum frá hugbúnaðarhúsum
- Hjálpað til við að hámarka arðsemi fjárfestinga í hugbúnaði
- Aðstoðað við að tengja þá fjárfestingu sem liggur í hugbúnaði við ríkjandi framtíðarsýn og stefnu.
Kostir þess að innleiða kerfi fyrir stjórnun og utanumhald hugbúnaðarleyfa eru ótvíræðir
-
Allt að 15-25% hagræðing í leyfiskostnaði
-
Bæta innri ferla og betri yfirsýn
-
Miðlæg stjórnun auðlinda
-
Auðvelda útdeilingu hugbúnaðarleyfa og þar með flýta fyrir verklagi

Staðall sem unnið er eftir
- ISO/IEC 19770-1:2006 Software Asset Management
Nánari upplýsingar veita:
Elvar Steinn Þorkelsson (elvar.thorkelsson@capacent.is)
