Hugbúnaðarumsýsla

Eftirlit og utanumhald hugbúnaðarleyfa er flókið ferli.  Með vel skilgreindu verklagi er hægt að auka öryggi og hafa betri stjórn á notkun, dreifingu og uppfærslum hugbúnaðar. 



Ef þú getur ekki svarað spurningunum hér að neðan staðfastlega játandi þá eru líkur á því eitthvað sé ábótavant í þínu umhverfi. Að öllum líkindum myndi fyrirtækið ekki standast eftirlitsskoðun framleiðanda.

Lykilspurningar

  • Er ljóst hversu margar útstöðvar, fartölvur, lófatölvur, og netþjónar eru í notkun?
  • Er sannarlega til staðar notkunarréttur á öllum hugbúnaði sem  settur hefur verið upp?
  • Eru verkferlar um hvernig haga skuli innkaupum og umsýslu á hugbúnaði þekktir?
  • Er hægt að nálgast alla leyfiskóða á einfaldan máta fyrir þann hugbúnað sem búið er að kaupa eða leigja



Capacent getur



- Aðstoðað við að meta stöðuna með óháðri úttekt á notkun hugbúnaðar



- Hjálpað við að ná fram hagræðingu á sviði hugbúnaðarleyfismála



- Aðstoðað við tilboðsgerð og við rýni á verðtilboðum frá hugbúnaðarhúsum



- Hjálpað til við að hámarka arðsemi fjárfestinga í hugbúnaði



- Aðstoðað við að tengja þá fjárfestingu sem liggur í hugbúnaði við ríkjandi framtíðarsýn og stefnu.

Kostir þess að innleiða kerfi fyrir stjórnun og utanumhald hugbúnaðarleyfa eru ótvíræðir

  • Allt að 15-25% hagræðing í leyfiskostnaði
  • Bæta innri ferla og betri yfirsýn
  • Miðlæg stjórnun auðlinda
  • Auðvelda útdeilingu hugbúnaðarleyfa og þar með flýta fyrir verklagi

 

Staðall sem unnið er eftir

  • ISO/IEC 19770-1:2006 Software Asset Management

Nánari upplýsingar veita:

 

Elvar Steinn Þorkelsson (elvar.thorkelsson@capacent.is)

 

Print Bookmark and Share

Samstarfsaðilar