Gallupvagn

Í  Gallupvagni á neti er vikulega safnað um 800 svörum úr um það bil 1.350 manna úrtaki úr Viðhorfahópi Gallup. Viðhorfahópurinn samanstendur af um 22.000 einstaklingum sem valdir hafa verið með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá. Þessir einstaklingar svara könnunum á netinu. Tryggt er að hópurinn endurspegli ávallt íslensku þjóðina og með það að leiðarljósi er viðurkenndum aðferðum beitt til að tryggja gæði úrtaksins. Vagninn fer af stað á hverjum miðvikudegi

Hagkvæmara er að leggja fyrir spurningar fyrir á netinu en með öðrum gagnaöflunarleiðum. Vegna greiðs aðgangs að svarendum tekur gagnaöflun að jafnaði mun skemmri tíma á netinu og þátttakendur svarað könnunum þegar þeim hentar. Að hámarki er gert ráð fyrir viku í gagnaöflun Gallupvagns á neti. Eftirfarandi grunnbreytur eru notaðar til að greina svör þátttakenda í Gallupvagni á neti kyn, aldur, búseta menntun og tekjur.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is
Print Bookmark and Share