Öll samtöl við starfsfólk eru starfsmannasamtöl. Sum þeirra snúast um daglegan rekstur, sum um sérverkefni, enn önnur um líðan og væntingar bæði stjórnenda og starfsfólks. Settur er til hliðar tími til að ræða um laun í launasamtölum eða væntingar í starfsþróun og margt fleira. Yfir þessu öllu vakir sú hugsun að samskipti stjórnenda og starfsmanns séu til þess fallinn að bæta frammistöðu starfsmannsins og auka árangur hans í vinnu. Stjórnun snýst ekki að litlu leyti um þessu skipulögðu og óskipulögðu samskipti við starfsfólk.
Tími stjórnenda og starfsfólks er takmarkaður og þeim tíma sem er varið til að ræða við starfsfólk þarf að nota vel. Með að setja samtal við starfsmann upp sem frammistöðusamtal er tryggt að samtalið mun snúast um frammistöðu, en ekki óljósar og óskýrar væntingar, og skila í kjölfarið betri vinnu og ánægðari starfsmanni.
Stutt skipulögð og hnitmiðuð starfsmannasamtöl (30 til 45 mínutur) skila miklum árangri bæði í líðan og ánægju starfsfólks en ekki síst árangri í vinnunni.
Frammistöðutengt starfsmannasamtal þarf að smíða að hverju starfi, fyrirtæki og starfsmanni. Í samvinnu við ráðgjafa er stjórnendum leiðbeint við gerð samtalsins. Farið er yfir hvaða mælikvarða er hægt að nota, hverja ekki, hversu oft og lengi þarf að hittast, hvernig fara þarf með markmiðasetningu og annað það sem skiptir máli til að ná hámarksárangri.