Djúpviðtöl eru eigindleg könnunaraðferð sem byggist á samræðum stjórnanda við einn einstakling í einu um ákveðið málefni. Algengt er að tekin séu 10-20 viðtöl í hverri rannsókn.
Með þessari rannsóknaraðferð er kafað djúpt í málefnin og reynt að komast að ýmsu sem einstaklingar eiga ekki auðvelt með að útskýra á einfaldan og fljótlegan hátt. Vel þjálfaður sérfræðingur tekur viðtölin, ýmist á vinnustað þess sem spurður er, heimili eða á öðrum stað sem hentar.
Markmið með djúpviðtölum er að finna rauðan þráð í umræðum fólks um ákveðið málefni sem:
Bæði djúpviðtöl og rýnihópar falla undir eigindlegar rannsóknir (qualitative research). Í rýnihópum eiga þátttakendur samræður og örva því hver annan til að tjá sig um málefnið. Það er oft kostur en stundum eru djúpviðtöl enn betri kostur, til dæmis þegar málefnið er þess eðlis að fólki finnst erfitt að tjá sig í hópi um það.
Dæmi um slíkt gæti verið:
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is

- Gefur vísbendingu um stöðu og þróun mála.
- Veitir innsýn í huga neytenda og eykur skilning.
- Gerir markaðsfólki kleift að setja sig í spor neytenda.
Bæði djúpviðtöl og rýnihópar falla undir eigindlegar rannsóknir (qualitative research). Í rýnihópum eiga þátttakendur samræður og örva því hver annan til að tjá sig um málefnið. Það er oft kostur en stundum eru djúpviðtöl enn betri kostur, til dæmis þegar málefnið er þess eðlis að fólki finnst erfitt að tjá sig í hópi um það.
Dæmi um slíkt gæti verið:
- Viðfangsefnið er mjög persónulegt
- Viðmælendur eru samkeppnisaðilar
- Viðfangsefnið er mjög flókið