CE11 Þjónustukönnun

Greining á tengslum viðskiptavina við fyrirtæki (CE11) byggir á ellefu spurningum. Spurningarnar mæla ánægju og tryggð viðskiptavina við fyrirtæki eins og hefðbundnar þjónustumælingar, en að auki er lögð áhersla á að mæla tilfinningaleg tengsl í gegnum eftirfarandi þætti: Traust, heilindi, stolt og ástríðu.

Þjónustumæling sem þessi er kjörin fyrir starfseiningar og minni fyrirtæki sem vilja kanna tengsl viðskiptavina við fyrirtækið eða fyrir stærri fyrirtæki sem vilja gera stutta athugun á stöðu mála á milli ítarlegri þjónustukannana.

CE11 er hluti af mæliaðferð sem kallast Human Sigma og er heildarmæling á tengslum viðskiptavina og starfsmanna við fyrirtæki. Human Sigma byggir annars vegar á mælingu meðal viðskiptavina og hins vegar á mælingu meðal starfsmanna. Með því að mæla einnig tengsl starfsmanna við fyrirtæki með Q12 eða vinnustaðagreiningu Gallup (GWA) má fá heildargreiningu á innri og ytri tengslum við fyrirtækið.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum hafðu þá samband við ráðgjafa okkar í síma 540 1000 eða sendu tölvupóst á netfangið rannsoknir@capacent.is
Print Bookmark and Share